Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 515. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 787  —  515. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um afskriftir viðskiptabankanna.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hve miklar voru afskriftir viðskiptabanka hér á landi samanborið við afskriftir norrænna banka á árunum 1999–2003?
     2.      Hvað má ætla að vaxtamunur inn- og útlána gæti minnkað mikið ef afskriftir hér á landi væru sambærilegar við það sem gerist annars staðar á Norðurlöndum að meðaltali?


Skriflegt svar óskast.