Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 899. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1367 — 899. mál.
til menntamálaráðherra um tekjur háskóla af skólagjöldum.
1. Hverjar voru tekjur einstakra skóla af skólagjöldum vegna náms á háskólastigi á síðasta skólaári og hvernig sundurliðast tekjurnar eftir námsleiðum í hverjum skóla?
2. Hve margir nemendur greiddu skólagjöldin og hvernig sundurliðast fjöldinn eftir námsleiðum í hverjum skóla?
3. Hver voru útgjöld skólanna vegna náms þar sem skólagjöld voru innheimt á síðasta skólaári og hvert var hlutfall skólagjaldanna af útgjöldunum, sundurliðað eftir skólum og námsleiðum?
4. Hver var fjárhæð skólagjaldanna á síðasta skólaári vegna náms á háskólastigi sem hver nemandi þurfti að greiða og hvað var lagt til grundvallar ákvörðun um fjárhæðina, sundurliðað eftir námsleiðum og skólum?
Skriflegt svar óskast.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1367 — 899. mál.
Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um tekjur háskóla af skólagjöldum.
Frá Kristni H. Gunnarssyni.