Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1422, 131. löggjafarþing 670. mál: gæðamat á æðardúni (heildarlög).
Lög nr. 52 18. maí 2005.
Nánar er kveðið á um framkvæmd laganna, starfsskyldur og hæfniskröfur dúnmatsmanna í reglugerð.
Þingskjal 1422, 131. löggjafarþing 670. mál: gæðamat á æðardúni (heildarlög).
Lög nr. 52 18. maí 2005.
Lög um gæðamat á æðardúni.
1. gr.
Lög þessi gilda um íslenskan æðardún og gæðamat á honum.2. gr.
Allur æðardúnn, hvort sem er til dreifingar á innanlandsmarkaði eða til útflutnings, skal metinn og veginn af lögskipuðum dúnmatsmönnum eftir fullhreinsun. Áður en að dreifingu á innanlandsmarkaði eða til útflutnings kemur skal liggja fyrir að æðardúnn standist gæðamat dúnmatsmanna með vottorði þeirra þar að lútandi.3. gr.
Landbúnaðarráðuneytið gefur út leyfi til handa dúnmatsmönnum til starfa á þeim stöðum sem það telur þörf á að fengnum tillögum Bændasamtaka Íslands og Félags íslenskra stórkaupmanna. Dúnmatsmenn skulu undirrita eiðstaf áður en þeir taka til starfa. Kostnaður af störfum þeirra greiðist af matsbeiðanda í samræmi við gjaldskrá sem ráðuneytið staðfestir.Nánar er kveðið á um framkvæmd laganna, starfsskyldur og hæfniskröfur dúnmatsmanna í reglugerð.
4. gr.
Brot á lögum þessum varða sektum og sæta meðferð opinberra mála.5. gr.
Lög þessi taka gildi þegar í stað. Á sama tíma falla úr gildi lög nr. 39/1970, um gæðamat á æðardún, og frá og með 1. júlí 2005 er lögð niður skipun þeirra aðila sem starfa við dúnmat samkvæmt þeim lögum.Samþykkt á Alþingi 10. maí 2005.