Fundargerð 132. þingi, 0. fundi, boðaður 2005-10-01 14:05, stóð 14:05:00 til 14:54:59 gert 1 15:45
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

laugardaginn 1. okt.

Árið 2005, laugardaginn 1. október, var hundrað þrítugasta og annað löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundraðasta og áttunda aðalþing í röðinni en hundrað fertugasta og sjöunda samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu kl. 1.15 miðdegis og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Séra Valgeir Ástráðsson predikaði og þjónaði fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Anna Kristín Gunnarsdóttir, 6. þm. Norðvest.
  2. Arnbjörg Sveinsdóttir, 6. þm. Norðaust.
  3. Ágúst Ólafur Ágústsson, 10. þm. Reykv. s.
  4. Árni Magnússon, 11. þm. Reykv. n.
  5. Árni M. Mathiesen, 1. þm. Suðvest.
  6. Ásta R. Jóhannesdóttir, 4. þm. Reykv. s.
  7. Ásta Möller, 10. þm. Reykv. n.
  8. Birgir Ármannsson, 11. þm. Reykv. s.
  9. Birkir J. Jónsson, 9. þm. Norðaust.
  10. Bjarni Benediktsson, 11. þm. Suðvest.
  11. Björgvin G. Sigurðsson, 7. þm. Suðurk.
  12. Björn Bjarnason, 2. þm. Reykv. n.
  13. Dagný Jónsdóttir, 8. þm. Norðaust.
  14. Drífa Hjartardóttir, 2. þm. Suðurk.
  15. Einar K. Guðfinnsson, 4. þm. Norðvest.
  16. Einar Oddur Kristjánsson, 9. þm. Norðvest.
  17. Einar Már Sigurðarson, 7. þm. Norðaust.
  18. Geir H. Haarde, 1. þm. Reykv. s.
  19. Guðjón Hjörleifsson, 5. þm. Suðurk.
  20. Guðjón A. Kristjánsson, 5. þm. Norðvest.
  21. Guðlaugur Þór Þórðarson, 4. þm. Reykv. n.
  22. Guðmundur Hallvarðsson, 8. þm. Reykv. s.
  23. Guðni Ágústsson, 3. þm. Suðurk.
  24. Guðrún Ögmundsdóttir, 3. þm. Reykv. n.
  25. Gunnar Birgisson, 3. þm. Suðvest.
  26. Gunnar Örlygsson, 10. þm. Suðvest.
  27. Halldór Ásgrímsson, 7. þm. Reykv. n.
  28. Halldór Blöndal, 2. þm. Norðaust.
  29. Helgi Hjörvar, 5. þm. Reykv. n.
  30. Hjálmar Árnason, 6. þm. Suðurk.
  31. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, 9. þm. Reykv. n.
  32. Jóhann Ársælsson, 2. þm. Norðvest.
  33. Jóhanna Sigurðardóttir, 2. þm. Reykv. s.
  34. Jón Bjarnason, 8. þm. Norðvest.
  35. Jón Gunnarsson, 10. þm. Suðurk.
  36. Jón Kristjánsson, 4. þm. Norðaust.
  37. Jónína Bjartmarz, 6. þm. Reykv. s.
  38. Katrín Júlíusdóttir, 7. þm. Suðvest.
  39. Kjartan Ólafsson, 8. þm. Suðurk.
  40. Kolbrún Halldórsdóttir, 8. þm. Reykv. n.
  41. Kristinn H. Gunnarsson, 7. þm. Norðvest.
  42. Kristján L. Möller, 3. þm. Norðaust.
  43. Lúðvík Bergvinsson, 4. þm. Suðurk.
  44. Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurk.
  45. Magnús Stefánsson, 3. þm. Norðvest.
  46. Margrét Frímannsdóttir, 1. þm. Suðurk.
  47. Mörður Árnason, 7. þm. Reykv. s.
  48. Pétur H. Blöndal, 3. þm. Reykv. s.
  49. Rannveig Guðmundsdóttir, 2. þm. Suðvest.
  50. Sigríður A. Þórðardóttir, 6. þm. Suðvest.
  51. Sigurður Kári Kristjánsson, 6. þm. Reykv. n.
  52. Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvest.
  53. Siv Friðleifsdóttir, 5. þm. Suðvest.
  54. Sólveig Pétursdóttir, 5. þm. Reykv. s.
  55. Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðaust.
  56. Sturla Böðvarsson, 1. þm. Norðvest.
  57. Valdimar L. Friðriksson, 9. þm. Suðvest.
  58. Valgerður Sverrisdóttir, 1. þm. Norðaust.
  59. Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 8. þm. Suðvest.
  60. Þórunn Sveinbjarnardóttir, 4. þm. Suðvest.
  61. Þuríður Backman, 10. þm. Norðaust.
  62. Ögmundur Jónasson, 9. þm. Reykv. s.
  63. Össur Skarphéðinsson, 1. þm. Reykv. n.

Forseti Íslands setur þingið.

[14:11]

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman laugardaginn 1. október.

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Halldór Ásgrímsson, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.


Ávarp aldursforseta.

[14:23]

Aldursforseti, Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra, bauð alþingismenn velkomna til starfa og lét í ljós þá ósk að störf Alþingis mættu verða alþingismönnum til sóma og landi og þjóð til heilla.


Minning Bergs Sigurbjörnssonar og Steinþórs Gestssonar.

[14:24]

Aldursforseti minntist fyrrverandi þingmanna, Bergs Sigurbjörnssonar, er lést 28. júlí sl., og Steinþórs Gestssonar, er lést 4. sept. sl.


Afsal þingmennsku.

[14:32]

Aldursforseti tilkynnti að borist hefðu bréf frá Bryndísi Hlöðversdóttur, Guðmundi Árna Stefánssyni og Davíð Oddssyni þar sem þingmennirnir afsala sér þingmennsku, og frá Ásgeiri Friðgeirssyni þar sem hann afsalar sér varaþingmennsku. Í stað þeirra taka sæti á Alþingi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Valdimar L. Friðriksson og Ásta Möller.

Aldursforseti bauð nýja þingmenn velkomna og þakkaði fráfarandi þingmönnum fyrir störf þeirra á Alþingi og óskaði þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi.


Varamenn taka þingsæti.

[14:37]

Aldursforseti las bréf þess efnis að Sigurrós Þorgrímsdóttir tæki sæti Gunnars Birgissonar, 3. þm. Suðvest., og Hlynur Hallsson tæki sæti Þuríðar Backman, 10. þm. Norðaust.


Kosning forseta.

[14:39]

Gengið var til forsetakosningar. Atkvæði féllu þannig að Sólveig Pétursdóttir, 5. þm. Reykv. s., hlaut 46 atkvæði, 12 þingmenn greiddu ekki atkvæði.


Ávarp forseta.

[14:42]

Hinn nýkjörni forseti gekk til forsetastóls og ávarpaði þingheim.

Fundi frestað kl. 14:54.

---------------