Fundargerð 132. þingi, 2. fundi, boðaður 2005-10-04 19:50, stóð 19:49:07 til 22:00:38 gert 4 22:16
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

2. FUNDUR

þriðjudaginn 4. okt.,

kl. 7.50 síðdegis.

Dagskrá:

Fjarvistarleyfi:


Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[19:50]

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra var útvarpað og sjónvarpað.

Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver.

Röð flokkanna í öllum umferðum var þessi: Framsóknarflokkur, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í fyrstu umferð, í annarri Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og í þriðju umferð Hjálmar Árnason, 6. þm. Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, Anna Kristín Gunnarsdóttir, 6. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri og Ágúst Ólafur Ágústsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Geir H. Haarde utanríkisráðherra í fyrstu umferð, Ásta Möller, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri umferð og Halldór Blöndal, 2. þm. Norðausturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Kolbrún Halldórsdóttir, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þriðju umferð Hlynur Hallsson, 10. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 5. þm. Norðvesturkjördæmis, Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri umferð, en í þriðju umferð Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurkjördæmis.

[22:00]

Útbýting þingskjala:

Fundi slitið kl. 22:00.

---------------