Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 192. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 192  —  192. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um kostnað við sameiningarkosningar.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.



    Hver var heildarkostnaður annars vegar ríkisvaldsins og hins vegar sveitarfélaga við nýafstaðnar sameiningarkosningar og átakið allt um sameiningu sveitarfélaga? Hver er kostnaðurinn sundurgreindur eftir verkefnum og sameiningartillögum?


Skriflegt svar óskast.