Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 492. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 724  —  492. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um rekstur vöruhótela.

Frá Jóhanni Ársælssyni.



     1.      Hafa möguleikar til reksturs fleiri vöruhótela en nú eru í rekstri verið kannaðir og kemur til greina að hið opinbera taki þátt í stofnun eða hvetji til rekstrar slíkrar starfsemi í þeim tilgangi að hafa áhrif á vörudreifingu með þungaflutningum um landið?
     2.      Ef svo er ekki, er ráðherra þá tilbúinn að láta kanna hagkvæmni slíks reksturs og áhrif hans á þungaflutninga á vegum landsins?