Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 15. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1330  —  15. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um láglendisvegi.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið. Umsagnir bárust frá Eyþingi, Byggðastofnun, Vegagerðinni, Félagi hópferðaleyfishafa, ríkislögreglustjóra og rannsóknarnefnd umferðarslysa.
    Með tillögu þessari er lagt til að Vegagerðinni verði falið að vinna tillögur sem byggjast á því að allar helstu leiðir á þjóðvegi 1, Vestfjörðum og norðausturhluta landsins verði á láglendi, undir 200 m hæð yfir sjó. Lagt er til að við gerð þessara tillagna taki Vegagerðin mið af auknu öryggi og styttingu leiða milli suðvesturhornsins og annarra landsvæða, svo og innan landsvæða.
    Nefndin leggur til að tillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Kristján L. Möller og Þórunn Sveinbjarnardóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Jón Bjarnason var áheyrnarfulltrúi við afgreiðslu málsins og er hann samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 17. mars 2007.



Guðmundur Hallvarðsson,


form., frsm.


Herdís Á. Sæmundardóttir.


Anna Kristín Gunnarsdóttir.



Guðjón Hjörleifsson.


Sigurrós Þorgrímsdóttir.


Jón Kristjánsson.



Guðjón A. Kristjánsson.