Fundargerð 134. þingi, 2. fundi, boðaður 2007-05-31 19:50, stóð 19:50:03 til 22:00:36 gert 31 22:16
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

2. FUNDUR

fimmtudaginn 31. maí,

kl. 7.50 síðdegis.

Dagskrá:

[19:51]

Útbýting þingskjala:


Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[19:51]

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra var útvarpað og sjónvarpað. Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Samfylkingin, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Geir H. Haarde forsætisráðherra í fyrstu umferð, Ólöf Nordal, 9. þm. Norðausturkjördæmis, í annarri umferð og Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon, 4. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Katrín Jakobsdóttir, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þriðju umferð Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, 6. þm. Suðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra í annarri og Guðbjartur Hannesson, 2. þm. Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Guðni Ágústsson, 3. þm. Suðurkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Siv Friðleifsdóttir, 10. þm. Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Höskuldur Þórhallsson, 10. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 6. þm. Norðvesturkjördæmis, Kristinn H. Gunnarsson, 9. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri umferð en í þriðju umferð Jón Magnússon, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Fundi slitið kl. 22:00.

---------------