Fundargerð 136. þingi, 74. fundi, boðaður 2009-02-04 19:50, stóð 19:52:04 til 22:02:15 gert 5 7:46
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

74. FUNDUR

miðvikudaginn 4. febr.,

kl. 7.50 síðdegis.

Dagskrá:

[19:52]

Útbýting þingskjala:


Stefna ríkisstjórnarinnar, skýrsla forsrh., ein umr.

[19:52]

Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna er var í öllum umferðum þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í fyrstu umferð, Ásta R. Jóhannesdóttir félags- og tryggingamálaráðherra, í annarri umferð og Helgi Hjörvar, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, 1. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Einar K. Guðfinnsson, 5. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri umferð og Björn Bjarnason, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Álfheiður Ingadóttir, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Árni Þór Sigurðsson, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Birkir J. Jónsson, 6. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Eygló Harðardóttir, 8. þm. Suðurkjördæmis, og í þriðju umferð Siv Friðleifsdóttir, 10. þm. Suðvesturkjördæmis.

Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 6. þm. Norðvesturkjördæmis, Kristinn H. Gunnarsson, 9. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri umferð en í þriðju umferð Grétar Mar Jónsson, 10. þm. Suðurkjördæmis.

Fundi slitið kl. 22:02.

---------------