Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 377. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 639  —  377. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um fjölda starfsmanna í umhverfisráðuneyti, Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun.

Frá Jóni Gunnarssyni.


    
     1.      Hver var fjöldi starfsmanna hjá umhverfisráðuneyti og Skipulagsstofnun árin 2000, 2005 og 2009?
     2.      Hver var fjöldi starfsmanna hjá Umhverfisstofnun árin 2003, 2005 og 2009?