Fundargerð 138. þingi, 0. fundi, boðaður 2009-10-01 13:30, stóð 14:06:59 til 14:31:23 gert 1 15:14
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

fimmtudaginn 1. okt.

Árið 2009, fimmtudaginn 1. október, var hundrað þrítugasta og áttunda löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundraðasta og tólfta aðalþing í röðinni en hundrað fimmtugasta og þriðja samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu, anddyri Skálans, kl. 1.10 miðdegis og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Jón A. Baldvinsson, vígslubiskup í Hólabiskupsdæmi, predikaði og séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónaði fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Atli Gíslason, 4. þm. Suðurk.
  2. Álfheiður Ingadóttir, 10. þm. Reykv. n.
  3. Árni Páll Árnason, 1. þm. Suðvest.
  4. Árni Johnsen, 9. þm. Suðurk.
  5. Árni Þór Sigurðsson, 5. þm. Reykv. n.
  6. Ásbjörn Óttarsson, 1. þm. Norðvest.
  7. Ásmundur Einar Daðason, 9. þm. Norðvest.
  8. Ásta R. Jóhannesdóttir, 10. þm. Reykv. s.
  9. Birgir Ármannsson, 11. þm. Reykv. s.
  10. Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykv. s.
  11. Birkir Jón Jónsson, 2. þm. Norðaust.
  12. Bjarni Benediktsson, 2. þm. Suðvest.
  13. Björgvin G. Sigurðsson, 1. þm. Suðurk.
  14. Björn Valur Gíslason, 8. þm. Norðaust.
  15. Einar K. Guðfinnsson, 5. þm. Norðvest.
  16. Eygló Harðardóttir, 7. þm. Suðurk.
  17. Guðbjartur Hannesson, 3. þm. Norðvest.
  18. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, 3. þm. Suðvest.
  19. Guðlaugur Þór Þórðarson, 5. þm. Reykv. s.
  20. Guðmundur Steingrímsson, 8. þm. Norðvest.
  21. Gunnar Bragi Sveinsson, 4. þm. Norðvest.
  22. Helgi Hjörvar, 4. þm. Reykv. n.
  23. Höskuldur Þórhallsson, 6. þm. Norðaust.
  24. Illugi Gunnarsson, 3. þm. Reykv. n.
  25. Jóhanna Sigurðardóttir, 1. þm. Reykv. n.
  26. Jón Bjarnason, 2. þm. Norðvest.
  27. Jón Gunnarsson, 12. þm. Suðvest.
  28. Jónína Rós Guðmundsdóttir, 10. þm. Norðaust.
  29. Katrín Jakobsdóttir, 2. þm. Reykv. n.
  30. Katrín Júlíusdóttir, 4. þm. Suðvest.
  31. Kristján Þór Júlíusson, 4. þm. Norðaust.
  32. Kristján L. Möller, 3. þm. Norðaust.
  33. Lilja Rafney Magnúsdóttir, 6. þm. Norðvest.
  34. Lilja Mósesdóttir, 6. þm. Reykv. s.
  35. Magnús Orri Schram, 11. þm. Suðvest.
  36. Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurk.
  37. Oddný G. Harðardóttir, 5. þm. Suðurk.
  38. Ólína Þorvarðardóttir, 7. þm. Norðvest.
  39. Ólöf Nordal, 2. þm. Reykv. s.
  40. Pétur H. Blöndal, 7. þm. Reykv. n.
  41. Ragnheiður E. Árnadóttir, 2. þm. Suðurk.
  42. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 8. þm. Suðvest.
  43. Róbert Marshall, 8. þm. Suðurk.
  44. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykv. n.
  45. Sigmundur Ernir Rúnarsson, 7. þm. Norðaust.
  46. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 4. þm. Reykv. s.
  47. Sigurður Ingi Jóhannsson, 3. þm. Suðurk.
  48. Siv Friðleifsdóttir, 6. þm. Suðvest.
  49. Skúli Helgason, 7. þm. Reykv. s
  50. Steingrímur J. Sigfússon, 1. þm. Norðaust.
  51. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, 11. þm. Reykv. n.
  52. Svandís Svavarsdóttir, 3. þm. Reykv. s.
  53. Tryggvi Þór Herbertsson, 9. þm. Norðaust.
  54. Unnur Brá Konráðsdóttir, 6. þm. Suðurk.
  55. Valgerður Bjarnadóttir, 6. þm. Reykv. n.
  56. Vigdís Hauksdóttir, 8. þm. Reykv. s
  57. Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 5. þm. Suðvest.
  58. Þór Saari, 9. þm. Suðvest.
  59. Þórunn Sveinbjarnardóttir, 7. þm. Suðvest.
  60. Þráinn Bertelsson, 9. þm. Reykv. n.
  61. Þuríður Backman, 5. þm. Norðaust.
  62. Ögmundur Jónasson, 10. þm. Suðvest.
  63. Össur Skarphéðinsson, 1. þm. Reykv. s.

Forseti Íslands setur þingið.

[14:07]

Hlusta | Horfa

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman fimmtudaginn 1. október.

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.

Strengjakvartett flutti lagið Hver á sér fegra föðurland.


Ávarp forseta Alþingis.

[14:23]

Hlusta | Horfa

Forseti ávarpaði þingheim.

Fundi frestað kl. 14:31.

---------------