Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 80. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 81  —  80. mál.




Fyrirspurn



til félags- og tryggingamálaráðherra um forvarnir og viðbrögð við kynbundu ofbeldi.

Frá Davíð Stefánssyni.



     1.      Hversu miklum fjármunum er varið árlega í annars vegar forvarnir gegn kynbundnu ofbeldi og hins vegar viðbrögð við afleiðingum kynbundins ofbeldis?
     2.      Hvaða skilgreiningar notar ráðuneytið til að afmarka annars vegar forvarnir gegn kynbundnu ofbeldi og hins vegar viðbrögð við afleiðingum þess?


Skriflegt svar óskast.