Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 677. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1384  —  677. mál.




Fyrirspurn



til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um girðingar meðfram vegum.

Frá Sigurði Inga Jóhannssyni.



    Hvernig er háttað reglum um girðingar meðfram vegum, þ.e. um stofnkostnað, hreinsun, viðhald og greiðslur til jarðareigenda? Gilda mismunandi reglur um girðingar við stofnbrautir (hringveginn sem aðrar stofnbrautir) og við aðra vegflokka? Óskað er eftir yfirliti sundurliðuðu eftir umdæmum Vegagerðarinnar vegna mismunandi útfærslu milli svæða.


Skriflegt svar óskast.