3. FUNDUR
mánudaginn 4. okt.,
kl. 7.50 síðdegis.
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.
Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.
Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Framsóknarflokkur og Hreyfingin.
Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðisráðherra, í annarri og Valgerður Bjarnadóttir, 6. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Bjarni Benediktsson, 2. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Ólöf Nordal, 2. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð og Ragnheiður E. Árnadóttir, 2. þingmaður Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í fyrstu umferð, í annarri Jórunn Einarsdóttir, 4. þingmaður Suðurkjördæmis, og í þriðju umferð Ólafur Þór Gunnarsson, 3. þingmaður Suðvesturkjördæmis.
Fyrir Framsóknarflokk töluðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Höskuldur Þórhallsson, 6. þingmaður Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Sigurður Ingi Jóhannsson, 3. þingmaður Suðurkjördæmis.
Fyrir Hreyfinguna töluðu í fyrstu umferð Þór Saari, 9. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri Baldvin Jónsson, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þingmaður Suðurkjördæmis.
Þingmálaskrá:[22:02]
Fundi slitið kl. 22:03.
---------------