Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 876. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1931  —  876. mál.




Svar



innanríkisráðherra við fyrirspurn Baldurs Þórhallssonar um stöðu lífsskoðunarfélaga.

     1.      Hefur ráðherra í hyggju að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga, hvort sem um er að ræða veraldleg eða trúarleg félög, með sérstakri lagasetningu?
    
Ráðuneytið hefur haft til skoðunar í nokkurn tíma þau sjónarmið sem sett hafa verið fram um að ójafnræði sé í því fólgið að félögum sem aðhyllast tiltekin trúarbrögð sé heimiluð formleg skráning á grundvelli laga um skráð trúfélög, nr. 108/1999, með þeim réttindum og skyldum sem því fylgir, en að sama eigi ekki við um svokölluð lífsskoðunarfélög sem ekki aðhyllast trúarlegar kennisetningar en miða starfsemi sína við siðferðisgildi og mannrækt. Á það er bent að stjórnvöld styrki enn fremur eiginleg trúfélög beint með innheimtu sóknargjalda en veraldleg lífsskoðunarfélög, sem vilja veita sömu þjónustu til sinna félagsmanna, fái engan stuðning. Í þessu sambandi er rétt að geta þess að ráðuneytinu er kunnugt um að víða í nágrannalöndunum hafi lífsskoðunarfélög fengið sömu stöðu og trúarleg félög, t.d. í Noregi.
    Ráðuneytið telur mikilvægt að þessi umræða fari fram og hefur í hyggju að leggja fyrir Alþingi frumvarp til breytinga á lögum um skráð trúfélög á komandi löggjafarþingi, sem og öðrum lögum eftir því sem við á, en markmið þeirra breytinga yrði að tryggja jafnræði hvað þetta varðar.

     2.      Hvað hefur verið gert í ráðuneytinu til þess að undirbúa slíka lagasetningu?

    Ráðuneytið hefur skoðað gögn sem liggja fyrir um þessi mál, m.a. erindi frá Siðmennt sem sent var 13. september 2010. Þá hefur ráðuneytið átt fund með fulltrúa Siðmenntar um þessi mál. Frumvarp er í vinnslu og verður það kynnt á heimasíðu ráðuneytisins innan tíðar.