Fundargerð 141. þingi, 0. fundi, boðaður 2012-09-11 14:05, stóð 14:09:52 til 14:33:35 gert 11 14:46
Alþingishúsið [prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

þriðjudaginn 11. sept.

Árið 2012, þriðjudaginn 11. september, var hundrað fertugasta og fyrsta löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundraðasta og fimmtánda aðalþing í röðinni en hundrað fimmtugasta og sjötta samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu kl. 13.25 miðdegis og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 13.30. Séra Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup predikaði. Séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónaði fyrir altari ásamt biskupi Íslands, Agnesi M. Sigurðardóttur.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Atli Gíslason, 4. þm. Suðurk.
  2. Álfheiður Ingadóttir, 10. þm. Reykv. n.
  3. Árni Páll Árnason, 1. þm. Suðvest.
  4. Árni Johnsen, 9. þm. Suðurk.
  5. Árni Þór Sigurðsson, 5. þm. Reykv. n.
  6. Ásbjörn Óttarsson, 1. þm. Norðvest.
  7. Ásmundur Einar Daðason, 9. þm. Norðvest.
  8. Ásta R. Jóhannesdóttir, 10. þm. Reykv. s.
  9. Birgir Ármannsson, 11. þm. Reykv. s.
  10. Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykv. s.
  11. Birkir Jón Jónsson, 2. þm. Norðaust.
  12. Bjarni Benediktsson, 2. þm. Suðvest.
  13. Björgvin G. Sigurðsson, 1. þm. Suðurk.
  14. Björn Valur Gíslason, 8. þm. Norðaust.
  15. Einar K. Guðfinnsson, 5. þm. Norðvest.
  16. Eygló Harðardóttir, 7. þm. Suðurk.
  17. Guðbjartur Hannesson, 3. þm. Norðvest.
  18. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, 3. þm. Suðvest.
  19. Guðlaugur Þór Þórðarson, 5. þm. Reykv. s.
  20. Guðmundur Steingrímsson, 8. þm. Norðvest.
  21. Gunnar Bragi Sveinsson, 4. þm. Norðvest.
  22. Helgi Hjörvar, 4. þm. Reykv. n.
  23. Höskuldur Þórhallsson, 6. þm. Norðaust.
  24. Illugi Gunnarsson, 3. þm. Reykv. n.
  25. Jóhanna Sigurðardóttir, 1. þm. Reykv. n.
  26. Jón Bjarnason, 2. þm. Norðvest.
  27. Jón Gunnarsson, 12. þm. Suðvest.
  28. Jónína Rós Guðmundsdóttir, 10. þm. Norðaust.
  29. Katrín Jakobsdóttir, 2. þm. Reykv. n.
  30. Katrín Júlíusdóttir, 4. þm. Suðvest.
  31. Kristján Þór Júlíusson, 4. þm. Norðaust.
  32. Kristján L. Möller, 3. þm. Norðaust.
  33. Lilja Rafney Magnúsdóttir, 6. þm. Norðvest.
  34. Lilja Mósesdóttir, 6. þm. Reykv. s.
  35. Lúðvík Geirsson, 11. þm. Suðvest.
  36. Magnús Orri Schram, 7. þm. Suðvest.
  37. Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurk.
  38. Mörður Árnason, 11. þm. Reykv. n.
  39. Oddný G. Harðardóttir, 5. þm. Suðurk.
  40. Ólína Þorvarðardóttir, 7. þm. Norðvest.
  41. Ólöf Nordal, 2. þm. Reykv. s.
  42. Pétur H. Blöndal, 7. þm. Reykv. n.
  43. Ragnheiður E. Árnadóttir, 2. þm. Suðurk.
  44. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 8. þm. Suðvest.
  45. Róbert Marshall, 8. þm. Suðurk.
  46. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykv. n.
  47. Sigmundur Ernir Rúnarsson, 7. þm. Norðaust.
  48. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 4. þm. Reykv. s.
  49. Sigurður Ingi Jóhannsson, 3. þm. Suðurk.
  50. Siv Friðleifsdóttir, 6. þm. Suðvest.
  51. Skúli Helgason, 7. þm. Reykv. s.
  52. Steingrímur J. Sigfússon, 1. þm. Norðaust.
  53. Svandís Svavarsdóttir, 3. þm. Reykv. s.
  54. Tryggvi Þór Herbertsson, 9. þm. Norðaust.
  55. Unnur Brá Konráðsdóttir, 6. þm. Suðurk.
  56. Valgerður Bjarnadóttir, 6. þm. Reykv. n.
  57. Vigdís Hauksdóttir, 8. þm. Reykv. s.
  58. Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 5. þm. Suðvest.
  59. Þór Saari, 9. þm. Suðvest.
  60. Þráinn Bertelsson, 9. þm. Reykv. n.
  61. Þuríður Backman, 5. þm. Norðaust.
  62. Ögmundur Jónasson, 10. þm. Suðvest.
  63. Össur Skarphéðinsson, 1. þm. Reykv. s.

Forseti Íslands setur þingið.

[14:09]

Horfa

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 11. sept.

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Strengjakvartett flutti lagið Hver á sér fegra föðurland.

Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.


Minning Þórarins Sigurjónssonar.

[14:21]

Horfa

Forseti Alþingis minntist Þórarins Sigurjónssonar, fyrrverandi alþingismanns, sem lést 20. júlí sl.

Strengjakvartett flutti lagið Ísland ögrum skorið.


Ávarp forseta Alþingis.

[14:27]

Horfa

Forseti ávarpaði þingheim.

Fundi frestað kl. 14:33.

---------------