Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 366. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 424  —  366. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um gildissvið stjórnsýslulaga.

Frá Atla Gíslasyni.


    Telur ráðherra koma til álita að breyta gildissviði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, með síðari breytingum, þannig að þau taki, eftir því sem við getur átt, til fyrirtækja, svo sem banka, fjölmiðla, olíufélaga, tryggingafélaga, verslunarsamsteypa og annarra stórfyrirtækja sem hafa mikla eða ráðandi markaðshlutdeild og fyrirtækja sem taka að sér þjónustuverkefni í almannaþágu?


Skriflegt svar óskast.