Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 652. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1164  —  652. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um rekjanleika í tölvukerfum ráðuneytisins.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Er rekjanleiki fyrir hendi í einhverjum þeirra tölvukerfa sem ráðuneytið notar og er haldin „log“-skrá hjá ráðuneytinu?
     2.      Hvernig er haldið utan um sögu aðgerða notenda í kerfunum, t.d. um það hvað notendur skrá, breyta eða skoða?


Skriflegt svar óskast.