Ferill 50. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


142. löggjafarþing 2013.
Þingskjal 131  —  50. mál.




Svar



iðnaðar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Oddnýjar G. Harðardóttur um álversframkvæmdir í Helguvík.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Til hvaða aðgerða hafa núverandi stjórnvöld gripið til að greiða fyrir því að álver í Helguvík taki sem fyrst til starfa, sbr. viðtöl í kvöldfréttum RÚV 27. ágúst sl. við ráðherra og forstjóra Century Aluminum?
     2.      Hvað hindrar nú álversframkvæmdir í Helguvík?
     3.      Hvaða hindrunum hafa núverandi stjórnvöld rutt úr vegi með formlegum hætti?

    Í tilvitnuðum kvöldfréttatíma RÚV var haft eftir iðnaðar- og viðskiptaráðherra, í kjölfar fundar með forstjórum Century Aluminum og Norðuráls, að ráðherra hefði „fullvissað þá, hér eftir sem hingað til, um að það mun ekki stranda á neinu á mínu borði. Og ég vil eftir fremsta megni vinna að því að koma þessari mikilvægu framkvæmd á laggirnar.“
    Ráðherra hefur á undanförnum mánuðum átt fundi með flestum þeim sem tengjast framkvæmdum við fyrirhugað álver í Helguvík til að fá sem gleggsta mynd af stöðu mála, þ.m.t. fulltrúum orkufyrirtækjanna. Eftir þau samtöl er það mat ráðherra að skýr vilji allra hlutaðeigandi sé til þess að ljúka verkefninu. Ráðherra mun áfram beita sér fyrir því að greiða fyrir framgangi þess.
    Frá því að núverandi ríkisstjórn tók við hefur ráðherra lýst því mjög skýrt yfir að hann styðji byggingu álvers í Helguvík og hafa stjórnarflokkarnir talað einni röddu í því máli. Er þar um grundvallarbreytingu að ræða frá því sem var í tíð fyrri ríkisstjórnar. Í framangreindu viðtali í kvöldfréttum RÚV við forstjóra Century Aluminum er haft eftir honum að „það mikilvægasta sé að greina megi sterkan vilja hjá íslensku þjóðinni, með því að kjósa ríkisstjórn sem vill hrinda þessu verkefni í framkvæmd“. Þessi yfirlýsing forstjóra Century Aluminum tekur af allan vafa um að ekki skortir vilja fyrirtækisins til að bygging álversins í Helguvík haldi áfram. Ríkisstjórnin mun styðja við þau áform af heilum hug og gera allt sem í hennar valdi stendur til að verkefnið geti orðið að veruleika.