Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 79. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 79  —  79. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um girðingamál Vegagerðarinnar.


Frá Svandísi Svavarsdóttur.


     1.      Hversu miklum fjármunum ver Vegagerðin til girðinga alls á árinu 2013?
     2.      Hversu miklum fjármunum varði Vegagerðin til girðinga á ári síðustu fimm ár á verðlagi ársins 2013?
     3.      Hverju námu óafgreiddar beiðnir um fjármuni til girðinga í lok ársins 2012?
     4.      Hverju nemur lengd girðinga sem Vegagerðin a) lét gera og b) styrkti á árinu 2012?
     5.      Hversu mikla fjármuni telur Vegagerðin sig þurfa á ári næstu fimm ár til girðinga?


Skriflegt svar óskast.