Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 192. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 240  —  192. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um tóbaksvarnir.

Frá Margréti Gauju Magnúsdóttur.


     1.      Telur ráðherra að herða megi ákvæði tóbaksvarnalaga hvað varðar eftirlit og viðurlög við því að selja börnum yngri en 18 ára tóbak?
     2.      Stendur til að taka lög um tóbaksvarnir til heildarendurskoðunar?


Skriflegt svar óskast.