Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 298. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 575  —  298. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um kostnað við störf sérfræðingahóps
um afnám verðtryggingar af neytendalánum.

Frá Oddnýju G. Harðardóttur.


    Hver var heildarkostnaður ráðuneytisins af starfi sérfræðingahóps um afnám verðtryggingar af nýjum neytendalánum sem ráðherra skipaði í samræmi við 6. tölul. þingsályktunar um aðgerðir vegna skuldavanda heimila á Íslandi, nr. 1/142?


Skriflegt svar óskast.