Ferill 781. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1384  —  781. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um undirbúning að gerð
nýs kennslu- og einkaflugvallar.

Frá Svandísi Svavarsdóttur.


     1.      Hvernig stendur undir­búningur að gerð nýs kennslu- og einkaflugvallar af hálfu Isavia og innanríkisráðuneytis, sbr. samkomulag ráðherra og borgarstjórnar Reykjavíkur frá 25. október 2013?
     2.      Hvaða starfsemi mun áformaður flugvöllur nýtast?
     3.      Hvaða staðir hafa verið teknir til athugunar sem vallarstæði?
     4.      Hvenær er gert ráð fyrir því að framkvæmdir við gerð flugvallarins hefjist?


Skriflegt svar óskast.