Fundargerð 145. þingi, 121. fundi, boðaður 2016-05-30 19:35, stóð 19:36:28 til 21:53:14 gert 31 7:51
Alþingishúsið [prenta uppsett í dálka] [<-][->]

121. FUNDUR

mánudaginn 30. maí,

kl. 7.35 síðdegis.

Dagskrá:

Fjarvistarleyfi:


Almennar stjórnmálaumræður.

[19:36]

Horfa

Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir og hafði hver þingflokkur tíu mínútur í fyrstu umferð, sex mínútur í annarri og sex mínútur í síðustu umferð.

Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Framsóknarflokkur, Björt framtíð og Píratar.

Fyrir Samfylkinguna töluðu Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Katrín Júlíusdóttir, 11. þm. Suðvesturkjördæmis, og í þeirri þriðju Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 5. þm. Norðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins voru Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Elín Hirst, 13. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð, en í þriðju umferð Vilhjálmur Árnason, 9. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð töluðu Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Ögmundur Jónasson, 8. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Lilja Rafney Magnúsdóttir, 8. þm. Norðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Framsóknarflokksins voru í fyrstu umferð Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra, í annarri, og Elsa Lára Arnardóttir, 6. þm. Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Bjarta framtíð töluðu í fyrstu umferð Óttarr Proppé, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Brynhildur Pétursdóttir, 10. þm. Norðausturkjördæmis, en í þriðju umferð Róbert Marshall, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Ræðumenn Pírata voru Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Ásta Guðrún Helgadóttir, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri, en í þriðju umferð Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvesturkjördæmis.

[21:52]

Útbýting þingskjala:

Fundi slitið kl. 21:53.

---------------