Fundargerð 146. þingi, 17. fundi, boðaður 2017-01-24 19:30, stóð 19:31:28 til 22:10:15 gert 25 8:42
Alþingishúsið [prenta uppsett í dálka] [<-][->]

17. FUNDUR

þriðjudaginn 24. jan.,

kl. 7.30 síðdegis.

Dagskrá:


Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:31]

Horfa

[22:09]

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra var útvarpað og sjónvarpað þriðjudaginn 24. janúar 2017 kl. 19.30. Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 18 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu 10 mínútur í fyrstu umferð, í annarri og þriðju umferð hafa þingflokkarnir 5 mínútur hver.

Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Sjálfstæðisflokkur (þingflokkur forsætisráðherra), Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Píratar, Viðreisn, Framsóknarflokkur, Björt framtíð og Samfylkingin.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í fyrstu umferð, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í annarri umferð og Valgerður Gunnarsdóttir, 8. þingmaður Norðausturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð voru Katrín Jakobsdóttir, 2. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Ari Trausti Guðmundsson, 6. þingmaður Suðurkjördæmis, og í þriðju umferð Rósa Björk Brynjólfsdóttir, 5. þingmaður Suðvesturkjördæmis.

Fyrir Pírata töluðu Ásta Guðrún Helgadóttir 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu umferð, Björn Leví Gunnarsson, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri umferð og Viktor Orri Valgarðsson, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju.

Ræðumenn Viðreisnar voru í fyrstu umferð Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, 5. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri og í þriðju umferð Jóna Sólveig Elínardóttir, 9. þingmaður Suðurkjördæmis.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Sigurður Ingi Jóhannsson, 2. þingmaður Suðurkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Lilja Alfreðsdóttir, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður og í þriðju umferð Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 2. þingmaður Norðausturkjördæmis.

Fyrir Bjarta framtíð töluðu í fyrstu umferð Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra í annarri Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, og í þriðju umferð Theodóra S. Þorsteinsdóttir, 12. þingmaður Suðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Logi Einarsson, 9. þingmaður Norðausturkjördæmis, í annarri, Oddný G. Harðardóttir, 10. þingmaður Suðurkjördæmis, og Guðjón S. Brjánsson, 8. þingmaður Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Útbýting þingskjala:

Fundi slitið kl. 22:10.

---------------