Fundargerð 147. þingi, 2. fundi, boðaður 2017-09-13 19:30, stóð 19:30:47 til 22:07:56 gert 14 9:49
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

2. FUNDUR

miðvikudaginn 13. sept.,

kl. 7.30 síðdegis.

Dagskrá:


Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:30]

Horfa

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra var útvarpað og sjónvarpað miðvikudaginn 13. september 2017 kl. 19:30. Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 18 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu 10 mínútur í fyrstu umferð, í annarri og þriðju umferð höfðu þingflokkarnir 5 mínútur hver.

Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn, Björt framtíð, Samfylkingin.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í fyrstu umferð, Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra, í annarri umferð og Páll Magnússon, 1. þm. Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð voru Katrín Jakobsdóttir, 2. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Steingrímur J. Sigfússon, 3. þm. Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Kolbeinn Óttarsson Proppé, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Fyrir Pírata töluðu Birgitta Jónsdóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 10. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð, og Eva Pandora Baldursdóttir, 5. þm. Norðvesturkjördæmis, í þriðju.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Sigurður Ingi Jóhannsson, 2. þm. Suðurkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Lilja Alfreðsdóttir, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Silja Dögg Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Viðreisnar voru í fyrstu umferð Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í annarri og í þriðju umferð Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra.

Fyrir Bjarta framtíð töluðu í fyrstu umferð Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra, í annarri Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, og í þriðju umferð Theodóra S. Þorsteinsdóttir, 12. þm. Suðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Logi Einarsson, 9. þm. Norðausturkjördæmis, í annarri Oddný G. Harðardóttir, 10. þm. Suðurkjördæmis, og Guðjón S. Brjánsson, 8. þm. Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fundi slitið kl. 22:07.

---------------