Fundargerð 148. þingi, 0. fundi, boðaður 2017-12-14 14:00, stóð 14:08:01 til 14:31:34 gert 14 15:8
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

fimmtudaginn 14. des.

Árið 2017, fimmtudaginn 14. desember, var hundrað fertugasta og áttunda löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundrað tuttugasta og fyrsta aðalþing í röðinni en hundrað sextugasta og þriðja samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu, anddyri Skálans, kl. 1.10 miðdegis og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Séra Arna Grétarsdóttir, sóknarprestur á Reynivöllum í Kjalarnessprófastsdæmi, predikaði. Séra Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónaði fyrir altari ásamt biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, 10. þm. Norðaust.
  2. Andrés Ingi Jónsson, 9. þm. Reykv. n.
  3. Anna Kolbrún Árnadóttir, 8. þm. Norðaust.
  4. Ari Trausti Guðmundsson, 5. þm. Suðurk.
  5. Ágúst Ólafur Ágústsson, 3. þm. Reykv. s.
  6. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, 5. þm. Reykv. n.
  7. Ásmundur Einar Daðason, 2. þm. Norðvest.
  8. Ásmundur Friðriksson, 4. þm. Suðurk.
  9. Bergþór Ólason, 4. þm. Norðvest.
  10. Birgir Ármannsson, 8. þm. Reykv. n.
  11. Birgir Þórarinsson, 3. þm. Suðurk.
  12. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 7. þm. Norðaust.
  13. Bjarni Benediktsson, 1. þm. Suðvest.
  14. Björn Leví Gunnarsson, 11. þm. Reykv. s.
  15. Bryndís Haraldsdóttir, 2. þm. Suðvest.
  16. Brynjar Níelsson, 5. þm. Reykv. s.
  17. Guðjón S. Brjánsson, 6. þm. Norðvest.
  18. Guðlaugur Þór Þórðarson, 1. þm. Reykv. n.
  19. Guðmundur Ingi Kristinsson, 12. þm. Suðvest.
  20. Guðmundur Andri Thorsson, 4. þm. Suðvest.
  21. Gunnar Bragi Sveinsson, 6. þm. Suðvest.
  22. Halla Signý Kristjánsdóttir, 7. þm. Norðvest.
  23. Halldóra Mogensen 11. þm. Reykv. n.
  24. Hanna Katrín Friðriksson, 7. þm. Reykv. s.
  25. Haraldur Benediktsson, 1. þm. Norðvest.
  26. Helga Vala Helgadóttir, 4. þm. Reykv. n.
  27. Helgi Hrafn Gunnarsson, 3. þm. Reykv. n.
  28. Inga Sæland, 8. þm. Reykv. s.
  29. Jón Gunnarsson, 5. þm. Suðvest.
  30. Jón Þór Ólafsson, 8. þm. Suðvest.
  31. Jón Steindór Valdimarsson, 13. þm. Suðvest.
  32. Karl Gauti Hjaltason, 8. þm. Suðurk.
  33. Katrín Jakobsdóttir, 2. þm. Reykv. n.
  34. Kolbeinn Óttarsson Proppé, 6. þm. Reykv. s.
  35. Kristján Þór Júlíusson, 1. þm. Norðaust.
  36. Lilja Alfreðsdóttir, 9. þm. Reykv. s.
  37. Lilja Rafney Magnúsdóttir, 3. þm. Norðvest.
  38. Líneik Anna Sævarsdóttir, 9. þm. Norðaust.
  39. Logi Einarsson, 5. þm. Norðaust.
  40. Njáll Trausti Friðbertsson, 6. þm. Norðaust.
  41. Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurk.
  42. Ólafur Þór Gunnarsson, 11. þm. Suðvest.
  43. Ólafur Ísleifsson, 10. þm. Reykv. n.
  44. Óli Björn Kárason, 10. þm. Suðvest.
  45. Páll Magnússon, 1. þm. Suðurk.
  46. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, 3. þm. Suðvest.
  47. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 3. þm. Norðaust.
  48. Sigríður Á. Andersen, 1. þm. Reykv. s.
  49. Sigurður Ingi Jóhannsson, 2. þm. Suðurk.
  50. Sigurður Páll Jónsson, 8. þm. Norðvest.
  51. Silja Dögg Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðurk.
  52. Smári McCarthy, 10. þm. Suðurk.
  53. Steingrímur J. Sigfússon, 2. þm. Norðaust.
  54. Steinunn Þóra Árnadóttir, 6. þm. Reykv. n.
  55. Svandís Svavarsdóttir, 2. þm. Reykv. s.
  56. Vilhjálmur Árnason, 9. þm. Suðurk.
  57. Willum Þór Þórsson, 9. þm. Suðvest.
  58. Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðvest.
  59. Þorsteinn Sæmundsson, 10. þm. Reykv. s.
  60. Þorsteinn Víglundsson, 7. þm. Reykv. n.
  61. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, 5. þm. Norðvest.
  62. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 4. þm. Reykv. s.
  63. Þórunn Egilsdóttir, 4. þm. Norðaust.

Félagar úr Schola cantorum sungu Gefðu að móðurmálið mitt.


Forseti Íslands setur þingið.

[14:10]

Horfa

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman fimmtudaginn 14. desember.

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.

Félagar úr Schola cantorum sungu Stóðum tvö í túni.

Aldursforseti, Steingrímur J. Sigfússon, ávarpaði þingheim.

Félagar úr Schola cantorum sungu Nú sefur jörðin sumargræn.


Minning Pálma Jónssonar.

[14:22]

Horfa

Forseti minntist Pálma Jónssonar, fyrrverandi alþingismanns og ráðherra, sem lést 9. október sl.


Kosning kjörbréfanefndar.

[14:29]

Horfa

Kjörbréfanefnd var svo skipuð:

Birgir Ármannsson,

Birgir Þórarinsson,

Björn Leví Gunnarsson,

Bryndís Haraldsdóttir,

Helga Vala Helgadóttir,

Jón Steindór Valdimarsson,

Karl Gauti Hjaltason,

Steinunn Þóra Árnadóttir,

Þórunn Egilsdóttir.

Fundi frestað kl. 14:31.

---------------