Fundargerð 149. þingi, 2. fundi, boðaður 2018-09-12 19:30, stóð 19:30:46 til 22:07:57 gert 13 7:53
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

2. FUNDUR

miðvikudaginn 12. sept.,

kl. 7.30 síðdegis.

Dagskrá:


Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:30]

Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir, 8 mínútur í fyrstu umferð, 5 mínútur í annarri umferð og 4 mínútur í þriðju umferð en forsætisráðherra hafði 16 mínútur til framsögu.

Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Vinstrihreyfingin -- grænt framboð, Samfylkingin, Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Flokkur fólksins og Viðreisn.

Ræðumenn fyrir Vinstrihreyfinguna -- grænt framboð voru Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, í fyrstu umferð, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í annarri umferð og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, í þriðju umferð.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Logi Einarsson, 5. þm. Norðausturkjördæmis, í annarri umferð Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, 10. þm. Norðausturkjördæmis, og Ágúst Ólafur Ágústsson, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Ræðumenn Miðflokksins voru í fyrstu umferð Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 3. þm. Norðausturkjördæmis, Sigurður Páll Jónsson, 8. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri umferð og Bergþór Ólason, 4. þm. Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokkinn voru Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð og Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra í annarri umferð.

Fyrir Pírata töluðu Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Smári McCarthy, 10. þm. Suðurkjördæmis, í annarri umferð og Jón Þór Ólafsson, 8. þm. Suðvesturkjördæmis, í þriðju.

Fyrir Framsóknarflokkinn töluðu Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í fyrstu umferð, í annarri umferð Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.

Fyrir Flokk fólksins töluðu í fyrstu umferð Inga Sæland, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Ólafur Ísleifsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þriðju umferð Karl Gauti Hjaltason, 8. þm. Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Viðreisnar voru í fyrstu umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri Þorsteinn Víglundsson, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þriðju umferð Hanna Katrín Friðriksson, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Horfa

Fundi slitið kl. 22:07.

---------------