Ferill 295. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 338  —  295. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993, með síðari breytingum (afurðastöðvar í kjötiðnaði).

Flm.: Halla Signý Kristjánsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir.


1. gr.

    Á eftir 71. gr. laganna kemur ný grein, 71. gr. A, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði samkeppnislaga er afurðastöðvum í kjötiðnaði heimilt að sameinast og gera með sér samkomulag um verkaskiptingu og hafa með sér annars konar samstarf til þess að halda niðri kostnaði við framleiðslu, geymslu og dreifingu kjötvara. Leggja skal upplýsingar um slíka samninga og samstarf fyrir ráðherra til upplýsingar.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Með frumvarpinu er lögð til breyting á búvörulögum í því skyni að undanþiggja afurðastöðvar í kjötiðnaði ákvæðum samkeppnislaga.
    Tilgangurinn er að veita innlendum kjötiðnaði tækifæri til að hagræða og til að bregðast við ört vaxandi samkeppni að utan. Í alþjóðlegum samanburði eru innlendar afurðastöðvar í kjötiðnaði örsmáar og því ekki samkeppnishæfar við afurðastöðvar á erlendum mörkuðum sem eru mun stærri og hagkvæmari rekstrareiningar. Innlendur kjötiðnaður er engu síður í vaxandi samkeppni við afurðir frá erlendum mörkuðum. Afurðarstöðvar í kjötiðnaði geta mjög takmarkað sameinast þar sem það er í andstöðu við ákvæði samkeppnislaga. Það skilar sér í of háum rekstrarkostnaði, háu verði til neytenda og lágu afurðaverði til bænda.
    Þróun síðustu missera sýnir að innflutningur er að aukast umtalsvert og flutningsmenn þessa frumvarps telja að innlendir aðilar standi þar höllum fæti. Flutningsmenn telja nauðsynlegt að leggja til að afurðastöðvum verði heimilað að bregðast við samkeppninni neytendum og bændum til hagsbóta með því að auka hagræði í rekstrinum. Samkeppnin er við erlenda framleiðendur sem eru margfalt stærri en þeir sem hér er að finna. Með frumvarpinu er því lagt til að afurðastöðvar í kjötiðnaði verði undanþegnar ákvæðum samkeppnislaga en fyrir því eru fordæmi þar sem mjólkuriðnaður er samkvæmt búvörulögum undanþeginn ákvæðum samkeppnislaga. Enn fremur er lagt til að slíkir samningar um sameiningu, samkomulag um verkaskiptingu og samstarf verði lagðir fyrir ráðherra landbúnaðarmála til upplýsingar.
    Flutningsmenn telja að samþykkt frumvarpsins muni hafa jákvæð áhrif fyrir afurðastöðvar og bændur og hafa í för með sér hagstæðara verð fyrir neytendur.