Ferill 539. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1467  —  539. mál.
Síðari umræða.



Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um fullgildingu fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.

Frá minni hluta utanríkismálanefndar.


    Þingsályktunartillaga um fullgildingu fríverslunarsamnings EFTA-ríkjanna við Filippseyjar er nú lögð fram í þriðja sinn á Alþingi.
    Ástæða þess að þingsályktunartillagan hefur ekki hlotið brautargengi fyrr en nú er hræðilegt ástand í mannréttindamálum á Filippseyjum í kjölfar þess að Rodrigo Duterte var kjörin forseti landsins 30. júní 2016.
    Kjör Duterte átti sér stað aðeins nokkrum vikum eftir að undirritað var samkomulag milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja um að hefja undirbúning að fullgildingu fríverslunarsamnings. Ísland er því að fullgilda glænýjan samning við ríki þrátt fyrir að forystumenn ríkisins hafið brotið gróflega gegn mannréttindum stuttu eftir að sest var við samningaborðið. EFTA-ríkin voru því í kjöraðstöðu til að stöðva vinnu við samningsgerðina á meðan beðið væri eftir að ástand í mannréttindamálum mundi batna.
    Ýmis mannréttindasamtök og stofnanir sem starfa á sviði mannréttinda hafa harðlega gagnrýnt ástand mannréttindamála í forsetatíð Duterte og nú er svo komið að samkvæmt opinberum tölur á Filippseyjum hafa 5.000 manns verið drepin af lögreglu án dóms og laga á 16 mánaða tímabili, frá júlí 2016 til nóvember 2017, að fyrirskipan Duterte sem hvatti til morða á eiturlyfjaneytendum og eiturlyfjasölum. Mannréttindasamtök hafa hins vegar áætlað að fjöldi fórnarlamba sé á bilinu 12–20 þúsund, sbr. grein í Guardian 3. apríl 2019, Philippines court orders release of police files on thousands of drug-war deaths.
    Aðeins einum og hálfum mánuði eftir að Duterte tók við forsetaembætti á Filippseyjum skoruðu Sameinuðu þjóðirnar og sérfræðingar þeirra í mannréttindamálum á stjórnvöld á Filippseyjum að virða laga- og réttarkerfið í landinu og sjá til þess að þeir sem framið hafi brot gegn fíkniefnalöggjöf landsins hlytu réttláta málsmeðferð fyrir filippseyskum dómstólum.
    Tvö mál eru nú í farvegi hjá Alþjóðlega sakamáladómstólnum í Haag (International Criminal Court) vegna fyrrgreindra aftaka án dóms og laga. Duterte brást við með því að draga Filippseyjar úr dómstólnum sem setur réttindi borgara landsins í verulegt uppnám. Til viðbótar við aftökur án dóms og laga á borgurum Filippseyja í forsetatíð Duterte má nefna að virt mannréttindasamtök hafa gert mjög alvarlegar athugasemdir við önnur grafalvarleg mannréttindabrot sem eiga sér stað á Filippseyjum. Má þar nefna að árið 2017 stóðu stjórnvöld fyrir árásum á frumbyggja landsins. Þá hafa mannréttindabrot verið framin á börnum en samtökin Human Rights Watch vöktu m.a. athygli á barnaþrælkun í filippseyskum gullnámum. Námurnar eru á 25 metra dýpi og voru börn notuð til að kafa ofan í vötn neðanjarðar til að finna gull. Loks hafa baráttusamtök fyrir réttindum samkynhneigðs fólks mótmælt harðlega mismunun gagnvart samkynhneigðum á Filippseyjum og öðrum sem hefur verið mismunað vegna kynhneigðar sinnar eða kyngervis og aðgangur þeirra að menntun og önnur réttindi skert í tíð Duterte. Hatursglæpum gegn samkynhneigðu fólki hefur fjölgað frá því að Duterte tók við völdum og tíðni morða á trans fólki er sú allra hæsta í löndum Suðaustur-Asíu.
    Það skýtur því verulega skökku við að fullgilda fríverslunarsamning nú þegar ástand í mannréttindamálum á Filippseyjum er jafn slæmt og raun ber vitni. Í raun er óskiljanlegt að leggja svo mikla áherslu á fullgildingu fríverslunarsamnings við landið á meðan Duterte er við völd og sýnir engin merki þess að milda stjórnarhætti sína.
     Minni hlutinn bendir á að þrátt fyrir að utanríkisráðherra Íslands hafi sem betur fer nýtt opinber tækifæri til að gagnrýna stöðu mannréttindamála á Filippseyjum hljóti það að skjóta skökku við að á sama tíma og Ísland á dýrmætt sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna eigi að fullgilda fríverslunarsamning við ríki sem stýrt er af mannréttindabrjót sem utanríkisráðherra hefur gagnrýnt opinberlega. Sömuleiðis er það varla fallið til að auka trúverðugleika þjóðar með fulltrúa í Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna að fullgilda fríverslunarsamning við land sem brýtur gróflega á réttindum barna, hefur ekki tekist að uppræta barnaþrælkun og lækkaði nýverið sakhæfisaldur ungmenna úr 15 árum í 12 ár, þrátt fyrir mótmæli mannréttindasamtaka.
    Því leggst minni hlutinn eindregið gegn því að fríverslunarsamningur við Filippseyjar verði fullgiltur við núverandi stöðu mannréttindamála og telur einboðið að Ísland bíði með fullgildinguna þar til ástandið batni eða skáni til muna.
    Þess má geta að fordæmi eru fyrir því að Alþingi Íslendinga hafi ítrekað hafnað samþykkt á framlagningu þingsályktunartillögu um fullgildingu fríverslunarsamnings vegna bágs ástands mannréttindamála í viðkomandi samningsríki. Það gerðist með fríverslunarsamningi EFTA-ríkjanna við Kólumbíu en þingsályktunartillaga þess efnis var lögð fram í fjórgang áður en hún hlaut samþykki þingsins. Tillagan var lögð fram á 138., 139. og 141. löggjafarþingi og var að lokum samþykkt á 143. löggjafarþingi árið 2014 eftir að kólumbísk stjórnvöld höfðu fullyrt að 720 einstaklingum sem voru taldir í hættu hafði verið veitt lögregluvernd og umsóknir tuga þúsunda fórnarlamba átakanna um landrými væru í vinnslu. Þá höfðu kólumbísk stjórnvöld beitt sér fyrir alvarlegum friðarviðræðum við kólumbísku skæruliðasamtökin FARC, bæði í Ósló og Havana, með þátttöku kúbverskra og norskra stjórnvalda og skýrsla mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna sýndi að jákvæð teikn væru á lofti í mannréttindamálum og friðarviðræðum.
    Ein helsta ástæða þess að tillagan um fríverslunarsamning við Kólumbíu var í þrígang ekki samþykkt af Alþingi var hörð gagnrýni launþegahreyfinga á afar bágt ástand mannréttindamála og ofsóknir sem verkalýðsfélög í Kólumbíu máttu sæta af hálfu ýmissa afla í landinu. Launþegahreyfingar í Noregi og á Íslandi höfðu á vettvangi EFTA hvatt til að samningur við Kólumbíu yrði ekki gerður, nema tekin væru af öll tvímæli um skyldur landsins til að virða mannréttindi og réttindi launafólks til að stofna og starfrækja verkalýðsfélög. Alþýðusamband Íslands (ASÍ) ítrekaði andstöðu sína við fríverslunarsamninginn bæði í umsögn til utanríkismálanefndar og á fundi nefndarinnar.
    Þess má geta að í umsögn ASÍ um þingsályktunartillögu um fullgildingu fríverslunarsamnings við Filippseyjar lýsa samtökin yfir verulegum efasemdum um fullgildingu fríverslunarsamningsins vegna stöðu mannréttindamála þar í landi og mæla ekki með samþykkt tillögunnar. Í umsögn Amnesty International á Íslandi er jafnframt bent á að rannsóknir Amnesty International sýni að víðtæk mannréttindabrot séu framin af hálfu stjórnvalda á Filippseyjum og í nafni stjórnvalda þeirra.
    Í formálsorðum fríverslunarsamninga EFTA-ríkjanna er áréttað að samningsaðilar skuldbindi sig til að virða lýðræði, réttarreglur, mannréttindi og mannfrelsi í samræmi við skyldur sínar samkvæmt þjóðarétti, þ.m.t. meginreglur sem settar eru fram í sáttmála Sameinuðu þjóðanna og mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. Það verður að teljast nokkuð holur hljómur í því af hálfu Íslands að fullgilda fríverslunarsamning við ríki sem virðir ekki mannréttindi og mannfrelsi. Staða mannréttindamála á Filippseyjum er svo alvarleg að þegar við gildistöku samningsins er fyrirséð að mannréttindaákvæði samningsins verði þverbrotið. Ástæða er því til að velta upp gildi annarra ákvæða samningsins komi til deilna um þau, ekki síst þar sem Filippseyjar hafa þegar sagt sig frá Alþjóðlega sakamáladómstólnum til þess að komast hjá réttmætri úrlausn dómstóla. Í ljósi þessa er varla hægt að líta á Filippseyjar sem trúverðugan samningsaðila á meðan ríkisstjórn Duterte er við völd.
    Rétt er að árétta að andstaða minni hlutans við fullgildingu samningsins að svo stöddu felur hvorki í sér andstöðu við samninginn síðar meir, þegar ástandið hefur batnað, né andstöðu við gerð fríverslunarsamninga almennt. Þvert á móti er aukið frjálsræði í viðskiptum mikilvæg aðferð til að draga úr líkum á ófriði og auka tengsl og gagnkvæman skilning milli ríkja í heiminum, sem leiðir til bættrar stöðu mannréttinda. Þó er fátt sem bendir til þess að fríverslunarsamningar, eins og sá sem hér um ræðir, dragi úr mannréttindabrotum. Virðing fyrir mannréttindum er forsenda frjálsra viðskipta. Mikilvægt er því að vinna bug á núverandi ástandi á Filippseyjum svo frjáls viðskipti geti blómstrað. Minni hlutinn telur að ekki sé siðferðislega rétt að fullgilda fríverslunarsamning við Filippseyjar fyrr en raunverulegar umbætur verða á mannréttindum og mannfrelsi íbúa Filippseyja.

Alþingi, 6. maí 2019.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir,
frsm.
Smári McCarthy.