Fundargerð 151. þingi, 2. fundi, boðaður 2020-10-01 19:30, stóð 19:32:12 til 22:01:03 gert 1 22:16
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

2. FUNDUR

fimmtudaginn 1. okt.,

kl. 7.30 síðdegis.

Dagskrá:


Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:32]

Horfa

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 12 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu 6 mínútur í fyrstu umferð, 5 mínútur í annarri og í þriðju umferð höfðu þingflokkarnir 4 mínútur hver.

Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Vinstrihreyfingin -- grænt framboð, Miðflokkurinn, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Flokkur fólksins.

Ræðumenn fyrir Vinstrihreyfinguna -- grænt framboð voru Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í fyrstu umferð, Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra í annarri umferð og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Miðflokkinn voru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 3. þingmaður Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Bergþór Ólason, 4. þingmaður Norðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Ólafur Ísleifsson, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Samfylkinguna töluðu Logi Einarsson, 5. þingmaður Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Guðmundur Andri Thorsson, 4. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð og Helga Vala Helgadóttir, 4. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju.

Fyrir Sjálfstæðisflokk töluðu Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Bryndís Haraldsdóttir, 2. þingmaður Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Páll Magnússon, 1. þingmaður Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Pírata voru í fyrstu umferð Halldóra Mogensen, 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 4. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri og í þriðju umferð Björn Leví Gunnarsson, 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu í fyrstu umferð Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í annarri Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.

Ræðumenn Viðreisnar voru í fyrstu umferð Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, 7. þingmaður Suðvesturkjördæmis, Hanna Katrín Friðriksson, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri og Jón Steindór Valdimarsson, 13. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Flokk fólksins töluðu í fyrstu og þriðju umferð Inga Sæland, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og Guðmundur Ingi Kristinsson, 12. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð.

Þingmenn utan flokka, þau Andrés Ingi Jónsson, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, 3. þm. Suðvesturkjördæmis, töluðu 4 mínútur hvort við lok fyrstu umferðar.

[22:00]

Útbýting þingskjala:

Fundi slitið kl. 22:01.

---------------