Ferill 167. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 168  —  167. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um uppgreiðslu lána vegna fasteignaviðskipta á Suðurnesjum.

Frá Þorsteini Sæmundssyni.


     1.      Hverjir eru þeir fjárfestar og hver eru þau fyrirtæki sem greiddu upp 256 lán hjá Íbúðalánasjóði vegna fasteignaviðskipta á Suðurnesjum á árunum 2016–2017 og hversu há lán endurgreiddi hver aðili?
     2.      Hversu hárri upphæð nam heildarendurgreiðslan?
     3.      Hver voru vaxtakjör lánanna?
     4.      Hversu mikið greiddu sömu aðilar til sjóðsins í uppgreiðslugjald af þessum lánum?


Skriflegt svar óskast.