Ferill 415. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 615 — 415. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um bætt aðgengi að efnisframboði Ríkisútvarpsins.
Frá Ásmundi Friðrikssyni.
1. Hvaða umbætur hafa verið gerðar í aðgengismálum blindra, heyrnarlausra og heyrnarskertra í sjónvarpsútsendingum Ríkisútvarpsins, á heimasíðu þess og í appi undanfarinn áratug?
2. Hver hefur aukningin á textun og táknmálstúlkun í efnisframboði Ríkisútvarpsins verið undanfarinn áratug og hvaða efni er lögð áhersla á að túlka og texta?
3. Hvernig hefur Ríkisútvarpið sinnt lögbundnum skyldum sínum á þessu sviði og hvernig mun það leitast við að gera það áfram?
Skriflegt svar óskast.