Ferill 64. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 64 — 64. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um úthlutun byggðakvóta.
Frá Ingu Sæland.
Hvernig skiptist úthlutun byggðakvóta skv. 4. mgr. 10. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, til byggðarlaga og skipa, sundurliðað eftir fiskveiðiárum tímabilið 2013/2014– 2019/2020? Óskað er eftir að í svarinu komi fram:
a. Skráningarnúmer, nafn, einkennisstafir, heimahöfn, stærð, útgerðarflokkur og eigandi skips.
b. Úthlutað aflamark, úthlutaður byggðakvóti, magn heimilda sem fluttar hafa verið frá skipi til skips í eigu annars aðila, afli og landaður afli í byggðarlagi sem tilheyrir byggðakvótaúthlutun skipsins. Fyrir fiskveiðiárin 2016/2017–2019/2020 taki svarið til þorsks, ýsu, ufsa, steinbíts, gullkarfa, keilu og löngu í þorskígildum en fyrir fiskveiðárin 2013/2014–2015/2016 taki svarið til þorsks, ýsu, ufsa og steinbíts í þorskígildum.
Skriflegt svar óskast.