Ferill 464. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 785  —  464. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um fullnustugerðir og skuldaskil einstaklinga 2018–2020.

Frá Ólafi Ísleifssyni.


     1.      Hversu margar fasteignir einstaklinga voru seldar nauðungarsölu árin 2018–2020? Svar óskast sundurliðað eftir árum, mánuðum, embættum og umdæmum sýslumanna.
     2.      Hversu mörg fjárnám voru gerð hjá einstaklingum árin 2018–2020 og hversu mörg þeirra reyndust árangurslaus? Svar óskast sundurliðað eftir árum, mánuðum, embættum og umdæmum sýslumanna.
     3.      Bú hversu margra einstaklinga voru tekin til gjaldþrotaskipta árin 2018–2020? Svar óskast sundurliðað eftir árum, mánuðum, dómstólum og umdæmum þeirra.


Skriflegt svar óskast.