Ferill 497. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 842  —  497. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Jóhanni Páli Jóhannssyni um tengsl kjörræðismanns Íslands í Hvíta-Rússlandi og forseta Hvíta-Rússlands.


     1.      Á hverju byggist það mat ráðherra, sem fram kemur í svari við fyrirspurn Stundarinnar, að það sé „orðum aukið“ að Alexander Mosjenskí, kjörræðismaður Íslands í Hvíta-Rússlandi, sé mjög náinn bandamaður Alexanders Lúkasjenkós, forseta landsins?
    Í svari ráðherra við spurningu fjölmiðilsins kom fram það mat ráðuneytisins að það sé orðum aukið að kjörræðismaðurinn hafi verið mjög náinn bandamaður Lúkasjenkós, eins og haldið hafði verið fram af fjölmiðlinum. Þegar hefur verið gerð grein fyrir málinu ítarlega í utanríkismálanefnd þingsins og liggur fyrir að þrátt fyrir reglulegar viðbætur á lista vegna þvingunaraðgerða á árabilinu 2012 til 2022 er viðkomandi kjörræðismaður ekki í hópi þeirra 183 einstaklinga frá Belarús sem sæta viðskiptaþvingunum samkvæmt ákvörðunum og regluverki Evrópusambandsins, þrátt fyrir að upplýsingar hafi borist um að nafn hans hafi komið til skoðunar á þeim vettvangi. Önnur ríki sem standa utan sambandsins hafa ekki heldur séð ástæðu til að setja kjörræðismanninn á lista vegna þvingunaraðgerða. Þá hefur einnig komið fram að ráðuneytið hafi ítrekað en án árangurs óskað sérstaklega eftir gögnum og upplýsingum sem Evrópusambandið kynni að búa yfir og rökstyddu hvers vegna kjörræðismaðurinn kynni að falla undir skilyrði þess fyrir beitingu viðskiptaþvingana. Því til viðbótar má nefna að kjörræðismaðurinn hefur sjálfur neitað ásökunum um náin tengsl við forsetann og svarað áburði um slíkt.

     2.      Hvenær kannaði ráðuneytið tengsl Alexanders Mosjenskís og Alexanders Lúkasjenkós, hvernig fór sú athugun fram og hvaða gagna var aflað?
    Utanríkisráðuneytið hefur ekki framkvæmt sjálfstæða rannsókn á þeim ásökunum sem birst hafa í fjölmiðlum um meint náin tengsl kjörræðismannsins við Lúkasjenkó. Eðli málsins samkvæmt fylgist ráðuneytið með slíkri umfjöllun og metur hverju sinni hvort ástæða sé til að gera breytingar á trúnaðarsambandi við þá kjörræðismenn sem starfa í umboði þess. Eins og fram kemur í svari við 1. tölul. gerði ráðuneytið ítrekaðar tilraunir til þess að afla upplýsinga um gögn sem hugsanlega lægju til grundvallar skoðunar á kjörræðismanninum. Var þetta gert um leið og ráðuneytið varð þess áskynja að slík athugun væri í gangi á vegum Evrópusambandsins. Í greinargerð kjörræðismannsins sjálfs, sem hann sendi til Evrópusambandsins undir árslok 2020, leitast hann við að sýna fram á að ásakanir um náin tengsl við Lúkasjenkó eigi ekki við rök að styðjast.

    Alls fór 1 vinnustund í að taka þetta svar saman.