Ferill 284. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 398  —  284. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað og lögum um aukatekjur ríkissjóðs (gjaldfrjáls rafræn útgáfa).

Flm.: Björn Leví Gunnarsson, Andrés Ingi Jónsson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Gísli Rafn Ólafsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Tómas A. Tómasson, Helga Vala Helgadóttir, Jóhann Páll Jóhannsson.


I. KAFLI
Breyting á lögum um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, með síðari breytingum.
1. gr.

    7. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Rafræn útgáfa Stjórnartíðinda og Lögbirtingablaðs.

    Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað skulu gefin út og þeim dreift gjaldfrjálst á rafrænan hátt. Við rafræna útgáfu skal tryggja öryggi og áreiðanleika birtra upplýsinga og að þær varðveitist á varanlegan hátt og gagnasnið útgáfunnar sé opið og aðgengilegt. Rafrænni útgáfu Lögbirtingablaðs skal hagað þannig, eftir því sem tæknilega er unnt, að komið sé í veg fyrir úrvinnslu og samtengingu persónuupplýsinga sem birtar eru. Við rafræna útgáfu skal útgáfudagur tilgreindur.
    Haga skal útgáfu Stjórnartíðinda og Lögbirtingablaðs þannig að vél- og hugbúnaður sem flestra nýtist. Skulu þeir sem þess óska geta keypt Stjórnartíðindi eða Lögbirtingablað í prentuðu formi í áskrift eða fengið einstök tölublöð send gegn greiðslu kostnaðar af prentun þeirra og sendingu.
    Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað skulu vera aðgengileg á tölvutækan hátt í opinni gagnagátt.
    Ráðherra mælir í reglugerð nánar fyrir um rafræna útgáfu Stjórnartíðinda og Lögbirtingablaðs, þar á meðal um gagnaöryggi, varðveislu gagna og persónuvernd, og um aðgengi ritanna á tölvutækan hátt í opinni gagnagátt.

II. KAFLI
Breyting á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991, með síðari breytingum.
2. gr.

    14. gr. b laganna fellur brott.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta var áður lagt fram á 148., 149., 150. og 151. löggjafarþingi ( 273. mál).
    Með þessari lagabreytingu er það gert að skyldu að Stjórnartíðindum og Lögbirtingablaði verði dreift á rafrænan hátt, að aðgengi að rafrænni útgáfu verði notendum að kostnaðarlausu og að allt sem birt er í þessum ritum verði aðgengilegt á tölvutækan hátt á aðgengilegu og opnu gagnasniði í opinni gagnagátt, t.d. opingogn.is. Samhliða því er lagt til að fella brott 14. gr. b laga um aukatekjur ríkissjóðs enda verður ekki lengur kveðið á um í lögum um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað að greiða skuli gjald fyrir rafrænan aðgang að Lögbirtingablaði samkvæmt lögum um aukatekjur ríkissjóðs.