Ferill 397. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 574  —  397. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 (framlög til reksturs grunnskóla).

Flm.: Jóhann Páll Jóhannsson, Helga Vala Helgadóttir, Kristrún Frostadóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Björn Leví Gunnarsson, Halldóra Mogensen, Lenya Rún Taha Karim, Kolbrún Baldursdóttir, Inga Sæland.


1. gr.

    8. mgr. 13. gr. laganna fellur brott.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Með frumvarpi þessu er lagt til að 8. mgr. 13. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga falli brott. Samkvæmt ákvæðinu renna framlög skv. a–d-lið 1. mgr. 13. gr. laganna, þ.e. framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til reksturs grunnskóla, ekki til sveitarfélaga í viðmiðunarflokki a, sbr. 3. mgr. 12. gr. Í viðmiðunarflokki a eru sveitarfélög þar sem íbúar eru 70 þúsund eða fleiri.
    Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið á Íslandi þar sem íbúar eru 70 þúsund eða fleiri og þannig eina sveitarfélagið sem ekki nýtur framlaganna. Að mati flutningsmanna felur þetta í sér sértæka útilokun gagnvart einu sveitarfélagi sem ekki byggist á málefnalegum sjónarmiðum og er til þess fallin að veikja grunnþjónustu við íbúa. Um er að ræða almenn jöfnunarframlög, framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda, framlög vegna nemenda með íslensku sem annað mál og framlög til Barna- og fjölskyldustofu vegna kennslu barna sem eru að beiðni barnaverndarnefndar lögheimilissveitarfélags vistuð utan þess á meðferðarheimili á vegum Barna- og fjölskyldustofu. Áður en fyrirkomulagið var lögfest með lögum nr. 157/2019 sem tóku gildi 4. janúar 2020 var Reykjavíkurborg útilokuð frá framlögunum á grundvelli ákvæða í reglugerðum, en Reykjavíkurborg hefur stefnt ríkinu og gert kröfu um 5,4 milljarða kr. greiðslu sem svarar til þeirrar fjárhæðar sem borgin hefði ellegar fengið úthlutað úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á tímabilinu 2015–2019.
    Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur það lögbundna hlutverk að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga. Sjóðnum eru tryggðar fastar tekjur á ári hverju með framlagi úr ríkissjóði, hlutdeild í útsvarstekjum sveitarfélaga og vaxtatekjum. Þótt stærri og fjölmennari sveitarfélög búi yfir hærri heildartekjustofnum en þau minni og geti notið meiri stærðarhagkvæmni við rekstur þjónustu réttlætir það ekki að eitt sveitarfélag sé með öllu útilokað frá því að hljóta einstök framlög úr Jöfnunarsjóði óháð útgjalda- og þjónustuþörf vegna lögbundinna verkefna.
    Víða er pottur brotinn í regluverki Jöfnunarsjóðs og fjárhagslegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga. Brýnt er að tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga verði endurskoðuð, rekstrargrunnur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga styrktur og sveitarfélögum um allt land tryggðir nauðsynlegir tekjustofnar í samræmi við umfang verkefna sem þeim eru falin með lögum. Frumvarpi þessu er ekki ætlað að hafa áhrif á framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til annarra sveitarfélaga en Reykjavíkurborgar og telja flutningsmenn mikilvægt að hugað verði að því við meðferð málsins og í fjárlagagerð næstu ára. Er frumvarpið aðeins eitt skref af mörgum sem nauðsynlegt er að taka til að tryggja að öll sveitarfélög sitji við sama borð og horfið verði frá þeirri tilhneigingu að fela sveitarfélögum aukin verkefni og leggja á þau auknar skyldur án þess að fjármagn fylgi og nauðsynlegir tekjustofnar séu tryggðir.
    Framlög til reksturs grunnskóla sem kveðið er á um í 13. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga byggjast á því grundvallarsjónarmiði að börn eigi rétt á sambærilegri þjónustu óháð uppruna, búsetu og félagslegri stöðu. Því verður ekki haldið fram með málefnalegum hætti að sveitarfélög með íbúa á bilinu 12.000 til 69.999, sem tilheyra viðmiðunarflokki b, sbr. 3. mgr. 12. gr., þurfi á sambærilegum stuðningi að halda vegna reksturs grunnskóla en Reykjavíkurborg þurfi engan slíkan stuðning. Við ákvörðun framlaga til reksturs grunnskóla verður að fylgja sanngjörnum og hlutlægum viðmiðum sem taka til allra sveitarfélaga á landinu.