Fundargerð 153. þingi, þingsetningarfundi, boðaður 2022-09-13 14:00, stóð 14:15:11 til 14:42:38 gert 13 14:46
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

þriðjudaginn 13. sept.

Árið 2022, þriðjudaginn 13. september, var hundrað fimmtugasta og þriðja löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundrað tuttugasta og sjötta aðalþing í röðinni en hundrað sextugasta og níunda samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn gengu fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Séra Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju, predikaði og biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, og séra Elínborg Sturludóttir, prestur í Dómkirkjunni, þjónuðu fyrir altari.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Andrés Ingi Jónsson, 10. þm. Reykv. n.
  2. Arndís Anna K. Gunnarsdóttir, 11. þm. Reykv. s.
  3. Ágúst Bjarni Garðarsson, 11. þm. Suðvest.
  4. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, 1. þm. Reykv. s.
  5. Ásmundur Einar Daðason, 5. þm. Reykv. n.
  6. Ásmundur Friðriksson, 6. þm. Suðurk.
  7. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, 3. þm. Suðurk.
  8. Berglind Ósk Guðmundsdóttir, 6. þm. Norðaust.
  9. Bergþór Ólason, 8. þm. Norðvest.
  10. Birgir Ármannsson, 9. þm. Reykv. s.
  11. Birgir Þórarinsson, 9. þm. Suðurk.
  12. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 3. þm. Norðaust.
  13. Bjarni Benediktsson, 1. þm. Suðvest.
  14. Bjarni Jónsson, 4. þm. Norðvest.
  15. Björn Leví Gunnarsson, 6. þm. Reykv. s.
  16. Bryndís Haraldsdóttir, 6. þm. Suðvest.
  17. Diljá Mist Einarsdóttir, 6. þm. Reykv. n.
  18. Eyjólfur Ármannsson, 6. þm. Norðvest.
  19. Gísli Rafn Ólafsson, 13. þm. Suðvest.
  20. Guðbrandur Einarsson, 10. þm. Suðurk.
  21. Guðlaugur Þór Þórðarson, 1. þm. Reykv. n.
  22. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, 4. þm. Suðvest.
  23. Guðmundur Ingi Kristinsson, 9. þm. Suðvest.
  24. Guðrún Hafsteinsdóttir, 1. þm. Suðurk.
  25. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, 7. þm. Suðurk.
  26. Halla Signý Kristjánsdóttir, 7. þm. Norðvest.
  27. Halldóra Mogensen, 3. þm. Reykv. n.
  28. Hanna Katrín Friðriksson, 8. þm. Reykv. s.
  29. Haraldur Benediktsson, 5. þm. Norðvest.
  30. Helga Vala Helgadóttir, 4. þm. Reykv. n.
  31. Hildur Sverrisdóttir, 5. þm. Reykv. s.
  32. Inga Sæland, 7. þm. Reykv. s.
  33. Ingibjörg Ólöf Isaksen, 1. þm. Norðaust.
  34. Jakob Frímann Magnússon, 8. þm. Norðaust.
  35. Jódís Skúladóttir, 10. þm. Norðaust.
  36. Jóhann Friðrik Friðriksson, 5. þm. Suðurk.
  37. Jóhann Páll Jóhannsson, 11. þm. Reykv. n.
  38. Jón Gunnarsson, 2. þm. Suðvest.
  39. Katrín Jakobsdóttir, 2. þm. Reykv. n.
  40. Kristrún Mjöll Frostadóttir, 3. þm. Reykv. s.
  41. Lilja Alfreðsdóttir, 4. þm. Reykv. s.
  42. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, 3. þm. Norðvest.
  43. Líneik Anna Sævarsdóttir, 4. þm. Norðaust.
  44. Logi Einarsson, 5. þm. Norðaust.
  45. Njáll Trausti Friðbertsson, 2. þm. Norðaust.
  46. Oddný G. Harðardóttir, 8. þm. Suðurk.
  47. Orri Páll Jóhannsson, 10. þm. Reykv. s.
  48. Óli Björn Kárason, 10. þm. Suðvest.
  49. Sigmar Guðmundsson, 12. þm. Suðvest.
  50. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 7. þm. Norðaust.
  51. Sigurður Ingi Jóhannsson, 2. þm. Suðurk.
  52. Stefán Vagn Stefánsson, 1. þm. Norðvest.
  53. Steinunn Þóra Árnadóttir, 7. þm. Reykv. n.
  54. Svandís Svavarsdóttir, 2. þm. Reykv. s.
  55. Tómas A. Tómasson, 9. þm. Reykv. n.
  56. Vilhjálmur Árnason, 4. þm. Suðurk.
  57. Willum Þór Þórsson, 3. þm. Suðvest.
  58. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, 8. þm. Reykv. n.
  59. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, 5. þm. Suðvest.
  60. Þórarinn Ingi Pétursson, 9.þm. Norðaust.
  61. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, 2. þm. Norðvest
  62. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 7. þm. Suðvest.
  63. Þórunn Sveinbjarnardóttir, 8. þm. Suðvest.

Graduale Nobili söng Hjá lygnri móðu. Lag: Jón Ásgeirsson. Ljóð: Halldór Kiljan Laxness.


Forseti Íslands setur þingið.

[14:15]

Horfa

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 13. september.

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi." Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.

Graduale Nobili söng Vökuró. Lag: Jórunn Viðar. Ljóð: Jakobína Sigurðardóttir.


Minnst látins fyrrverandi alþingismanns, Árna Gunnarssonar

[14:25]

Horfa

Forseti minntist Árna Gunnarssonar, fyrrverandi alþingismanns, sem lést 1. júlí sl.


Minnst látins fyrrverandi alþingismanns, Ingvars Gíslasonar

[14:31]

Horfa

Forseti minntist Ingvars Gíslasonar, fyrrverandi alþingismanns, sem lést 17. ágúst sl.

Graduale Nobili söng Hvíld. Lag: Hugi Guðmundsson. Ljóð: Snorri Hjartarson.

Ávarp forseta Alþingis.

[14:37]

Forseti Alþingis, Birgir Ármannsson, ávarpaði þingheim.

Horfa

Fundi slitið kl. 14:42.

---------------