Fundargerð 153. þingi, 2. fundi, boðaður 2022-09-14 19:35, stóð 19:35:34 til 21:27:00 gert 14 21:31
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

2. FUNDUR

miðvikudaginn 14. sept.,

kl. 7.35 síðdegis.

Dagskrá:

Fjarvistarleyfi:


Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:35]

Umræðurnar skiptust í tvær umferðir. Hver þingflokkur hafði 6 mínútur í hvorri umferð en forsætisráðherra hafði 12 mínútur til framsögu. Röð flokkanna var þessi í báðum umferðum: Vinstrihreyfingin -- grænt framboð, Samfylkingin, Flokkur fólksins, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Miðflokkurinn.

Ræðumenn fyrir Vinstrihreyfinguna -- grænt framboð voru Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í fyrri umferð og Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra í seinni umferð.

Fyrir Samfylkinguna töluðu Logi Einarsson, 5. þm. Norðaust., í fyrri umferð og Þórunn Sveinbjarnardóttir, 8. þm. Suðvest., í seinni umferð.

Fyrir Flokk fólksins töluðu Inga Sæland, 7. þm. Reykv. s., í fyrri umferð og Guðmundur Ingi Kristinsson, 9. þm. Suðvest., í seinni umferð.

Fyrir Sjálfstæðisflokk töluðu Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra í fyrri umferð og í seinni umferð Hildur Sverrisdóttir, 5. þm. Reykv. s.

Ræðumenn Pírata voru í fyrri umferð Halldóra Mogensen, 3. þm. Reykv. n., og í seinni umferð Gísli Rafn Ólafsson, 13. þm. Suðvest.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu í fyrri umferð Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og í seinni umferð Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

Ræðumenn Viðreisnar voru í fyrri umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 5. þm. Suðvest., og Guðbrandur Einarsson, 10. þm. Suðurk., í þeirri seinni.

Ræðumenn Miðflokksins voru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 7. þm. Norðaust., í fyrri umferð, og Bergþór Ólason, 8. þm. Norðvest., í seinni umferð.

Horfa

Fundi slitið kl. 21:27.

---------------