Ferill 196. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 197 — 196. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um ættleiðingar, nr. 130/1999 (ættleiðendur).
Flm.: Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir,
Brynja Dan Gunnarsdóttir,
Þórarinn Ingi Pétursson, Ágúst Bjarni Garðarsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Helga Vala Helgadóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir.
1. gr.
Öðru hjóna eða einstaklingi í óvígðri sambúð má þó með samþykki hins veita leyfi til að ættleiða barn þess eða kjörbarn, enda hafi það í a.m.k. fimm ár tekið virkan þátt í uppeldi barnsins þegar það var á barnsaldri, nema alveg sérstakar ástæður mæli með ættleiðingu. Sama gildir hafi einstaklingur verið í hjúskap eða óvígðri sambúð með foreldri barns en hjúskap eða óvígðri sambúð hefur lokið með skilnaði, sambúðarslitum eða andláti.
2. gr.
Nú ættleiðir einstaklingur barn fyrrverandi maka eða sambúðarmaka eða barn látins maka eða sambúðarmaka og fær barnið þá réttarstöðu sem væri það eigið barn þessara tveggja einstaklinga.
3. gr.
Greinargerð.
Markmið frumvarpsins er að tryggja að umsækjandi sem alið hefur upp barn geti fengið ættleiðingarleyfi þrátt fyrir að hafa slitið sambúð eða hjónabandi við foreldrið. Eins og staðan er nú getur einstaklingur sem alið hefur upp barn í fjölda ára ekki sótt um að ættleiða það barn ef viðkomandi hefur slitið sambúð eða hjónabandi við hitt foreldrið. Mögulega eiga þessir einstaklingar önnur börn saman og sá sem óskar eftir ættleiðingunni vill tryggja að barn sem hefur alist upp hjá viðkomandi hafi sömu réttindi og önnur börn hans. Samkvæmt núgildandi lögum getur einstaklingur sem óskar eftir að ættleiða barn sem alist hefur upp hjá umsækjanda sótt um ættleiðingu sem einstaklingur, sbr. 4. mgr. 2. gr., en það hefur þau réttaráhrif að lagatengsl barns við báða blóðforeldra rofnar.