Ferill 70. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 70  —  70. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016 (framsal kröfuréttar).

Flm.: Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Inga Sæland, Jakob Frímann Magnússon, Tómas A. Tómasson.


1. gr.

    Á eftir 16. gr. a laganna kemur ný grein, 16. gr. b, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Framsal réttar.

    Ef lánveitandi framselur kröfurétt sinn til þriðja aðila samkvæmt lánssamningi, eða samninginn sjálfan, á neytandi rétt á því að halda uppi sömu mótbárum gegn framsalshafa sem hann gat nýtt sér gagnvart upphaflegum lánveitanda, þ.m.t. rétt til skuldajafnaðar.
    Upphaflegur lánveitandi skal upplýsa neytanda um framsal sem um getur í 1. mgr. nema þegar upphaflegur lánveitandi heldur áfram lánsþjónustu sinni við neytanda með samkomulagi við framsalshafa.

2. gr.

    Á eftir 10. tölul. 1. mgr. 53. gr. laganna kemur nýr töluliður, svohljóðandi: 16. gr. b um skyldu lánveitanda til að upplýsa neytanda um framsal réttar.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta var áður lagt fram á 152. löggjafarþingi (81. mál) og er nú lagt fram óbreytt. Með frumvarpinu er lagt til að við lög um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016, bætist ákvæði sama efnis og ákvæði 19. gr. laga um neytendalán, nr. 33/2013, varðandi réttindi og skyldur í tengslum við framsal lánveitanda á kröfuréttindum samkvæmt lánssamningi.
    Sambærilegt ákvæði var áður í 17. gr. laga um neytendalán, nr. 121/1994, en með lögum nr. 179/2000 voru fasteignalán felld undir gildissvið þeirra. Þegar þau lög voru leyst af hólmi með núgildandi lögum um neytendalán, nr. 33/2013, náðu þau einnig yfir fasteignalán. Með gildistöku laga um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016, voru fasteignalán felld undan gildissviði laga um neytendalán, án þess að sambærilegt ákvæði væri að finna í hinum nýju lögum. Tilgangur frumvarps þessa er að bæta úr þeim ágalla og tryggja réttindi neytenda í tengslum við framsal kröfuréttinda samkvæmt samningum um fasteignalán.
    Ákvæði 1. gr. frumvarpsins er samhljóða 19. gr. laga um neytendalán, nr. 33/2013, og ákvæði 2. gr. er efnislega samhljóða s-lið 1. mgr. 30. gr. sömu laga. Skýringar að baki þeim ákvæðum eiga því að sama skapi við um efnisleg ákvæði frumvarps þessa. Ákvæði 3. gr. frumvarpsins þarfnast ekki skýringar.