Ferill 575. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 792 — 575. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um neyslurými.
Frá Lenyu Rún Taha Karim.
1. Er unnið að því í ráðuneytinu að fjölga neyslurýmum? Ef svo er, hvenær má búast við að niðurstöður þeirrar vinnu komi til framkvæmda?
2. Stendur til að útbúa staðbundið neyslurými í varanlegu húsnæði? Ef svo er, verður húsnæðið í Reykjavík?
3. Ef til stendur að útbúa staðbundið neyslurými í varanlegu húsnæði, mun færanlega neyslurýmið Ylja áfram standa skjólstæðingum neyslurýmanna til boða?
Skriflegt svar óskast.