Ferill 965. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1961 — 965. mál.
Svar
menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur og Birni Leví Gunnarssyni um skrifleg svör ráðherra við fyrirspurnum frá alþingismönnum.
1. Hvert er ferlið í ráðuneytinu þegar fyrirspurn skv. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis berst frá alþingismanni sem óskar skriflegs svars? Hvernig er það skráð í skjalavistunarkerfi ráðuneytisins?
Ferlið í ráðuneytinu hefst þegar fyrirspurn skv. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis berst frá alþingismanni sem óskar skriflegs svars og er skráð í skjalavistunarkerfi ráðuneytisins. Í kjölfarið útbýr verkefnastjóri ráðherra vinnuskjal sem svarið er unnið í. Verkefnastjóri ráðherra heldur utan um fyrirspurnir til ráðherra í verkefnaskipulagi á samvinnusvæði (e. Teams). Þar er fyrirspurnum úthlutað til skrifstofustjóra og sérfræðinga eftir efni fyrirspurnar. Sérfræðingar og skrifstofustjórar stilla upp svari við fyrirspurn sem er lesið yfir af ráðherra, aðstoðarmönnum ráðherra og ráðuneytisstjóra. Þegar svarið hefur verið samþykkt er það sent til Alþingis og málinu lokað í skjalavistunarkerfi ráðuneytisins. Þetta verklag er skráð, samþykkt og birt bæði í gæðahandbók og á innri vef ráðuneytisins.
2. Hversu langur tími leið að jafnaði undanfarin þrjú ár frá því að fyrirspurn var útbýtt þar til ráðuneytið sendi forseta Alþingis skriflegt svar? Svar óskast sundurliðað eftir löggjafarþingum og fyrirspyrjendum.
Upplýsingar um þann tíma sem tekur að svara fyrirspurn byggjast á því hvaða dag fyrirspurnin er birt á vef Alþingis og hvaða dag svar er birt á vef Alþingis. Vert er að hafa í huga að svör ráðuneytisins til Alþingis birtast ekki alltaf samdægurs á vef þingsins og getur því munað nokkrum dögum á því hvenær svar berst Alþingi og hvenær það er birt. Svar miðast við stofnun ráðuneytisins þann 1. febrúar 2022.
Á 152. löggjafarþingi liðu að jafnaði 45,8 dagar frá því að fyrirspurn birtist á vef Alþingis þar til svar ráðuneytisins birtist á vef Alþingis. Fyrirspurnir voru 11 talsins.
Á 153. löggjafarþingi liðu að jafnaði 56,9 dagar frá því að fyrirspurn birtist á vef Alþingis þar til svar ráðuneytisins birtist á vef Alþingis. Fyrirspurnir voru 34 talsins.
Á 154. löggjafarþingi liðu að jafnaði 62,8 dagar frá því að fyrirspurn birtist á vef Alþingis þar til svar ráðuneytisins birtist á vef Alþingis. Fyrirspurnir voru 27 talsins.
Þingm. | Mál nr. | 154. löggjafarþing | Dagar | Meðaltal |
GRÓ | 1121 | Verklagsreglur Ríkisútvarpsins um kynferðisbrot starfsfólks og verktaka, fsp. 16.05.2024 (þskj. 1723) | ekki svarað | |
IÓI | 1116 | Verðlagsþróun innan lands, fsp. 14.05.2024 (þskj. 1705) | ekki svarað | |
IIS | 1061 | Ávinningur sjálfvirknivæðingar og gervigreindar, fsp. 17.04.2024 (þskj. 1540), svar 03.06.2024 (þskj. 1765) | 42 | |
ÞSv | 1011 | Skýrsla starfshóps, fsp. 11.04.2024 (þskj. 1476), svar 04.06.2024 (þskj. 1780) | 54 | |
BirgÞ | 1007 | Aðkeypt þjónusta hjá Samkeppniseftirlitinu, fsp. 11.04.2024 (þskj. 1472) | ||
ArnG | 965 | Skrifleg svör ráðherra við fyrirspurnum frá alþingismönnum, fsp. 11.04.2024 (þskj. 1428) | ||
BGuðm | 856 | Nefndir á vegum ráðuneytis og kostnaður vegna þeirra, fsp. 19.03.2024 (þskj. 1281) | ||
BDG | 823 | Hatursorðræða og kynþáttahatur, fsp. 12.03.2024 (þskj. 1237), svar 15.04.2024 (þskj. 1503) | 31 | |
BGuðm | 802 | Styrkir til félagasamtaka, fsp. 11.03.2024 (þskj. 1216) | ||
BGuðm | 751 | Kostnaður við auglýsingagerð, kynningarmál, viðburði og ráðstefnur, fsp. 22.02.2024 (þskj. 1121) | ||
ÓBK | 686 | Ríkisútvarpið og útvarpsgjöld, fsp. 08.02.2023 (þskj. 1027) | ||
ÁsF | 613 | Eftirlit með fjárhagsupplýsingastofum, fsp. 23.01.2024 (þskj. 919) | ||
BergÓ | 598 | Styrkir og samstarfssamningar, fsp. 22.01.2024 (þskj. 901), svar 03.06.2024 (þskj. 1767) | 128 | |
EÁ | 563 | Ríkisútvarpið og áfengisauglýsingar, fsp. 07.12.2023 (þskj. 698), svar 22.01.2024 (þskj. 877) | 35 | |
KGaut | 559 | Tilkynningarskyld útlánaþjónusta og neytendalán, fsp. 07.12.2023 (þskj. 694), svar 25.01.2024 (þskj. 896) | 45 | |
ÞorbG | 548 | Fjárheimildir Samkeppniseftirlitsins, fsp. 04.12.2024 (þskj. 647) | ||
BLG | 441 | Alþjóðlegar skuldbindingar og frumvarpsgerð, fsp. 26.10.2023 (þskj. 462), svar 22.01.2024 (þskj. 876) | 77 | |
FRF | 429 | Fjöldi starfsmanna, stöðugilda og einstaklinga í verktöku hjá Rúv, fsp. 26.10.2023 (þskj. 450), svar 21.11.2023 (þskj. 577) | 25 | |
EDS | 396 | Félagsleg fyrirtæki, fsp. 24.10.2023 (þskj. 408), svar 05.12.2023 (þskj. 671) | 41 | |
VilÁ | 382 | Framlög og hagræðingarkrafa til Ríkisútvarpsins, fsp. 17.10.2023 (þskj. 394), svar 22.01.2024 (þskj. 879) | 86 | |
IIS | 365 | Myndefni gervigreindar, fsp. 16.10.2023 (þskj. 376), svar 09.11.2023 (þskj. 513) | 23 | |
ÞorbG | 356 | Hlutfall þjóðarframleiðslu fyrirtækja og félaga sem gera upp í öðrum gjaldmiðli en krónu, fsp. 16.10.2023 (þskj. 367), svar 20.03.2024 (þskj. 1294) | 96 | |
IIS | 325 | Fjölþrepa markaðssetning, fsp. 09.10.2023 (þskj. 330), svar 31.10.2023 (þskj. 480) | 21 | |
ÞorbG | 280 | Heimild til færslu bókhalds í öðrum gjaldmiðlum en krónu, fsp. 26.09.2023 (þskj. 283) svar 06.11.2023 (þskj. 06.11.2023) | 34 | |
BLG | 272 | Ferðakostnaður, fsp. 26.09.2023 (þskj. 275), svar 13.02.2024 (þskj. 13.02.2024 (þskj. 1018) | 134 | |
BirgÞ | 253 | Útvistun verkefna Samkeppniseftirlitsins, fsp. 26.09.2023 (þskj. 256) svar 22.01.2024 (þskj. 878) | 107 | |
JPJ | 15 | Eftirlit með heimagistingu, fsp. (þskj. 15), svar 05.03.2024 (þskj. 1148) | 88 | |
62,8 |
Þingm. | Mál nr. | 153. löggjafarþing | Dagar | Meðaltal |
BergÓ | 1199 | Styrkir og samstarfssamningar, fsp. 09.06.2023 (þskj. 2114) | ekki svarað | |
BirgÞ | 1165 | Útvistun verkefna Samkeppniseftirlitsins, fsp. 08.06.2023 (þskj. 2029) | ekki svarað | |
BjG | 1143 | Notkun íslenska fánans og fánalitanna við merkingar á matvælum, fsp. 01.06.2023 (þskj. 2089), svar 30.06.2023 (þskj. 1925) | 29 | |
SÞÁ | 1124 | Stafræn endurgerð íslensks prentmáls, fsp. 30.05.2023 (þskj. 1879), svar 30.06.2023 (þskj. 2088) | 31 | |
VilÁ | 1112 | Ríkisútvarpið, fsp. 23.05.2023 (þskj. 1846), svar 30.06.2023 (þskj. 2170) | 38 | |
BHar | 1094 | Endurmat útgjalda, fsp. 15.05.2023 (þskj. 1800), svar 08.09.2023 (þskj. 2238) | 115 | |
IIS | 1083 | Netöryggi, fsp. 15.05.2023 (þskj. 1788), svar 30.06.2023 (þskj. 2087) | 45 | |
JPJ | 1051 | Matvörugátt, fsp. 03.05.2023 (þskj. 1691), svar 30.06.2023 (þskj. 2085) | 27 | |
DME | 1050 | Þættirnir Skuggastríð, fsp. 03.05.2023 (þskj. 1690), svar 23.05.2023 (þskj. 1812) | 20 | |
BHar | 1011 | Ráð, nefndir, stjórnir, starfshópar og stýrihópar, fsp. 24.04.2023 (þskj. 1619), svar 08.09.2023 (þskj. 2283) | 138 | |
BLG | 1002 | Könnun á sannleiksgildi, fsp. 16.04.2023 (þskj. 1592), svar 15.05.2023 (þskj. 1756) | 26 | |
ÓBK | 997 | Úthlutanir úr Kvikmyndasjóði, fsp. 18.04.2023 (þskj. 1582), svar 01.06.2023 (þskj. 1874) | 44 | |
HS | 934 | Sjóðir á vegum ráðuneytisins og stofnana þess, fsp. 29.03.2023 (þskj. 1464), svar 03.06.2023 (þskj. 2083) | 92 | |
SigurjÞ | 865 | Safnahúsið á Sauðárkróki, fsp. 20.03.2023 (þskj. 1357), svar 24.04.2023 (þskj. 1549) | 32 | |
BLG | 851 | Fjárveitingar vegna reksturs fjölmiðla á landsbyggðinni, fsp. 14.03.2023 (þskj. 1320), svar 24.04.2023 (þskj. 1596) | 38 | |
ÞorbG | 815 | Íslandsbanki og samþjöppun á fjármálamarkaði, fsp. 07.03.2023 (þskj. 1257), svar 23.05.2023 (þskj. 1813) | 40 | |
VE | 811 | Fulltrúi í sendiráði Íslands í Brussel, fsp. 06.03.2023 (þskj. 1250), svar 03.04.2023 (þskj. 1451) | 28 | |
ÁsF | 752 | Ráðning starfsfólks með skerta starfsorku, fsp. 21.02.2023 (þskj. 1145), svar 15.05.2023 (þskj. 1755) | 81 | |
IIS | 731 | Takmörkun á óhóflegum innheimtukostnaði, fsp. 09.02.2023 (þskj. 1107), svar 14.04.2023 (þskj. 1595) | 77 | |
BLG | 668 | Endurgreiðslur vegna útgáfu bóka á íslensku, fsp. 31.01.2023 (þskj. 1038), svar 02.05.2023 (þskj. 1639) | 95 | |
IIS | 654 | Aðgengi íslenskra neytenda að netverslun á EES-svæðinu, fsp. 31.01.2023 (þskj. 1024), svar 14.03.2023 (þskj. 1305) | 45 | |
IIS | 652 | Hindranir fjölmiðla á Keflavíkurflugvelli, fsp. 31.0.2023 (þskj. 1022), svar 07.03.2023 (þskj. 1246) | 34 | |
DME | 603 | Skýrsla Efnahags- og framfarastofnunar um samkeppnismat, fsp. 24.01.2023 (þskj. 966), svar 14.03.2023 (þskj. 1311) | 49 | |
IngS | 571 | Verðupplýsingar tryggingafélaga, fsp. 09.12.2022 (þskj. 764), svar 09.02.2023 (þskj. 1073) | 59 | |
DME | 566 | Skipulag og stofnanir ráðuneytisins, fsp. 08.12.2022 (þskj. 748), svar 15.03.2023 (þskj. 1310) | 66 | |
HVH | 519 | Fjölgun starfsfólks og embættismanna, fsp. 28.11.2022 (þskj. 635), svar 23.02.2023 (þskj. 1180) | 87 | |
BLG | 448 | Áskrift að dagblöðum, tímaritum og öðrum miðlum, fsp. 15.11.2022 (þskj. 523), svar 15.05.2023 (þskj. 1750) | 181 | |
IngS | 413 | Stjórnmálamenn í þáttum Ríkisútvarpsins, fsp. 08.11.2022 (þskj. 461), svar 02.12.2022 (þskj. 558) | 24 | |
OPJ | 410 | Listamannalaun, fsp. 08.11.2022 (þskj. 458), svar 12.12.2022 (þskj. 698) | 34 | |
JSIJ | 379 | Menningarsamningur við Akureyrarbæ, fsp. 20.10.2022 (þskj. 397), svar 02.12.2022 (þskj. 623) | 43 | |
ÞorbG | 343 | Heimild til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli, fsp. 17.10.2022 (þskj. 355), svar 13.12.2022 (þskj. 719) | 57 | |
ÞKG | 338 | Skuldbindingar vegna stöðlunar, fsp. 17.10.2022 (þskj. 350), svar 09.12.2022 (þskj. 646) | 43 | |
BLG | 237 | Ferðakostnaður og dagpeningar ráðherra, fsp. 29.09.2022 (þskj. 238), svar 09.12.2022 (þskj. 669) | 62 | |
JPJ | 191 | Skipun þjóðminjavarðar án auglýsingar, fsp. 22.09.2022 (þskj. 192), svar 07.11.2022 (þskj.) | 41 | |
56,9 |
Þingm. | Mál nr. | 152. löggjafarþing | Dagar | Meðaltal |
ÁLÞ | 736 | Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki, fsp. 14.06.2022 (þskj. 1282), svar 30.06.2022 (þskj. 1418) | 16 | |
DME | 732 | Skýrsla OECD um samkeppnismat íslenskrar ferðaþjónustu og byggingariðnaðar, fsp. 13.06.2022 (þskj. 1233) | ekki svarað | |
LRM | 674 | Endurgerð skipsins Maríu Júlíu, fsp. 16.05.2022 (þskj. 1007) svar 07.06.2022 (þskj. 1172) | 22 | |
DA | 664 | Íslenski dansflokkurinn, fsp. 08.04.2022 (þskj. 902) svar 16.05.2022 (þskj. 989) | 38 | |
ÞorbG | 641 | Skaðabótaréttur vegna samkeppnislagabrota, fsp. 08.04.2022 (þskj. 898), svar 23.05.2022 (þskj. 1049) | 45 | |
HJG | 552 | Skipan í stjórnir, starfshópa, nefndir, ráð o.þ.h., fsp. 30.03.2022 (þskj. 785), svar 09.06.2022 (þskj. 1190) | 71 | |
HJG | 543 | Rekstur skáldahúsa á Íslandi, fsp. 30.03.2022 (þskj. 775), svar 30.05.2022 (þskj. 1074) | 61 | |
HJG | 542 | Amtsbókasafnið á Akureyri, fsp. 30.03.2022 (þskj. 744), svar 16.05.2022 (þskj. 988) | 47 | |
DME | 521 | Njósnaauglýsingar, fsp. 28.03.2022 (þskj. 748), svar 16.05.2022 (þskj. 975) | 49 | |
ÁLÞ | 345 | Samskipti við hagsmunaverði og skráning þeirra, fsp. 09.02.2022 (þskj. 485), svar 25.04.2022 (þskj. 900) | 83 | |
SDG | 309 | Ferðagjöf, fsp. 02.02.2022 (þskj. 430), svar 01.03.2022 (þskj. 586) | 26 | |
45,8 |
3. Hvaða aðilar í ráðuneytinu sjá um vinnslu skriflegra svara, frágang þeirra, yfirlestur og sendingu til forseta Alþingis? Hversu langan tíma tók hvert þessara skrefa að jafnaði undanfarin þrjú ár? Svar óskast sundurliðað eftir löggjafarþingum og fyrirspyrjendum.
Eins og fram kemur í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar eru það sérfræðingar ráðuneytisins og skrifstofustjórar sem sjá um vinnslu og frágang skriflegra svara við fyrirspurnum alþingismanna. Mjög stór hluti fyrirspurna kallar á upplýsingar frá einhverri eða einhverjum stofnunum ráðuneytisins og jafnvel frá þeim öllum. Í þeim tilvikum er áhersla lögð á að þeir sem koma að vinnslu svars sendi upplýsingabeiðni til hlutaðeigandi stofnunar eða stofnana eins fljótt og kostur er, með hæfilegum tímamörkum miðað við svarfrest Alþingis. Upplýsingabeiðnirnar geta kallað á mikla vinnu innan hlutaðeigandi stofnana. Þegar ráðuneytinu hafa borist nauðsynlegar upplýsingar frá stofnununum þarf að leggja mat á og vinna úr þeim svörum, upplýsingum og gögnum, huga að samræmi og framsetningu og færa í það form sem áskilið er fyrir svör við skriflegum fyrirspurnum alþingismanna. Þá lesa ráðherra, aðstoðarmenn ráðherra og ráðuneytisstjóri yfir svör við fyrirspurnum og samþykkja þau. Verkefnastjóri ráðherra heldur utan um mál bæði í skjalavistunarkerfi ráðuneytisins og á Teams-svæði og sér að lokum um lokafrágang og sendingu til forseta Alþingis.
Ráðuneytið hefur ekki skráð hversu langan tíma það tók að jafnaði að vinna svörin.