Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
82. löggjafarþing 1961–62.
Þskj. 807  —  200. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

um landþurrkun á Fljótsdalshéraði.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta, svo fljótt sem verða má, mæla vegna framræslu allt ræktanlegt votlendi á Fljótsdalshéraði og gera áætlun um, hvað kosta muni að þurrka þetta land.


Samþykkt á Alþingi 16. apríl 1962.