Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Eva Dögg Davíðsdóttir
7. þm. RN, Vg, EDD
Eva Dögg Davíðsdóttir

   
Eggert G. Þorsteinsson

Eggert G. Þorsteinsson

Fæddur í Keflavík 6. júlí 1925, dáinn 9. maí 1995. Foreldrar: Þorsteinn Eggertsson (fæddur 4. júní 1905, dáinn 26. nóvember 1940) skipstjóri þar og kona hans Margrét Guðnadóttir (fædd 12. janúar 1906, dáin 25. september 1963) húsmóðir. Maki 1 (10. janúar 1948): Jóna Jónsdóttir (fædd 2. apríl 1922, dáin 19. október 1981) hárgreiðslukona. Foreldrar: Jón Kornelíus Pétursson og kona hans Ágústa Gunnlaugsdóttir. Maki 2: Helga Soffía Einarsdóttir (fædd 22. nóvember 1924, dáin 9. janúar 1998) yfirkennari. Foreldrar: Einar Jóhannsson og kona hans Ingibjörg Jónsdóttir. Börn Eggerts og Jónu: Þorsteinn (1948), Jón Ágúst (1953), Eggert (1956), Guðbjörg (1958).

Sveinspróf í múrsmíði Iðnskólanum í Reykjavík 1947. Tungumálanám í aukatímum og á kvöldnámskeiðum.

Múrari í Reykjavík 1947—1953 og stundaði þá iðn að nokkru næstu ár. Skrifstofustjóri Húsnæðismálastofnunar ríkisins 1961—1965. Skipaður 31. ágúst 1965 sjávarútvegs- og félagsmálaráðherra, 1. janúar 1970 sjávarútvegs-, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 15. júní 1971, en gegndi störfum til 14. júlí. Framkvæmdastjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 1972—1979. Forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins 1979—1993.

Í miðstjórn Alþýðuflokksins 1948—1988. Formaður Félags ungra jafnaðarmanna 1949—1953, næstu tvö ár formaður Sambands ungra jafnaðarmanna. Formaður Múrarafélags Reykjavíkur 1953—1958. Varaforseti Alþýðusambands Íslands 1958—1960. Skipaður 1951 í endurskoðunarnefnd laga um iðnaðarmál. Í landsbankanefnd 1954—1957 og í öryggisráði á vinnustöðum 1955—1958. Kosinn 1955 í atvinnumálanefnd. Í húsnæðismálastjórn 1957—1965, formaður hennar frá 1960. Sat þing Alþjóðaþingmannasambandsins 1959, 1961, 1963— 1964 og 1971—1972. Skipaður 1960 í endurskoðunarnefnd um húsnæðismál. Kosinn 1961 í vinnutímanefnd. Skipaður 1962 í endurskoðunarnefnd laga um Iðnlánasjóð. Í stjórn Íslenska járnblendifélagsins 1975—1982. Formaður stjórnar Gutenbergs frá 1984.

Landskjörinn alþingismaður (Seyðfirðinga) 1953—1956, (Reykvíkinga) 1959 og 1971—1978, alþingismaður Reykvíkinga 1957—1959 og 1959—1971 (Alþýðuflokkur).

Varaþingmaður Reykvíkinga febrúar—maí 1957.

Sjávarútvegs- og félagsmálaráðherra 1965—1970, sjávarútvegs-, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 1970—1971.

Forseti efri deildar 1959. 1. varaforseti efri deildar 1959—1965 og 1971—1978.



Síðast breytt 23.09.2019.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.