Þórarinn Þórarinsson Fæddur í Ólafsvík 19. september 1914, dáinn 13. maí 1996. Foreldrar: Þórarinn Þórðarson (fæddur 10. júní 1886, dáinn 10. febrúar 1914) sjómaður þar og kona hans Kristjana Magnúsdóttir (fædd 14. nóvember 1884, dáin 14. september 1968) húsmóðir. Maki (3. september 1943): Ragnheiður Vigfúsdóttir Þormar (fædd 19. apríl 1920) húsmóðir. Foreldrar: Vigfús Þormar og kona hans Helga Þorvaldsdóttir. Börn: Helga (1943), Þórarinn (1949), Ragnheiður Hrefna (1953). Samvinnuskólapróf 1933. Blaðamaður 1933—1936. Ritstjóri 1936—1984. Formaður Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík 1936—1938 og formaður Sambands ungra framsóknarmanna 1938—1944. Í stjórn Fiskimálasjóðs 1947—1953, í útvarpsráði 1953—1971 og 1975—1978, formaður. Kosinn 1954 í kosningalaganefnd, 1966 í endurskoðunarnefnd laga um þingsköp Alþingis. Skipaður 1972 í þingmannanefnd til að endurskoða tekjuöflunarkerfi ríkisins, formaður nefndarinnar. Á hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 1973—1982 og í undirbúningsnefnd hennar 1971—1973. Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1954—1958, 1960, 1967, 1968—1969 og 1973—1974. Átti sæti í fjölda nefnda á vegum Framsóknarflokksins, m.a. í sendinefndum þingmanna vegna samninga um landhelgismál við Þjóðverja 1975 og Breta 1976. Skipaður í stjórnarskrárnefnd 1978. Alþingismaður Reykvíkinga 1959—1978 (Framsóknarflokkur). Formaður þingflokks Framsóknarflokksins 1971—1978.
Ritaði sögu Framsóknarflokksins: Sókn og sigrar, í þremur bindum. Svo varstu búinn til bardaga er heiti á greinasafni eftir hann (1992). Ritstjóri: Nýja dagblaðið (1936—1938). Tíminn (1938—1984). |