Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Katrín Jakobsdóttir
2. þm. RN, Vg, KJak
Katrín Jakobsdóttir

   
Jón Gunnarsson

Jón Gunnarsson

Fæddur í Reykjavík 21. september 1956. Foreldrar: Gunnar Jónsson (fæddur 7. júní 1933, dáinn 31. ágúst 2014) rafvirkjameistari og Erla Dóróthea Magnúsdóttir (fædd 20. maí 1936, dáin 25. ágúst 1988) verslunarkona. Maki: Margrét Halla Ragnarsdóttir (fædd 16. ágúst 1956) verslunarkona. Foreldrar: Ragnar Benediktsson og Arndís Pálsdóttir. Börn: Gunnar Bergmann (1978), Arndís Erla (1982), Arnar Bogi (1992).

Próf frá málmiðnaðardeild Iðnskólans í Reykjavík 1975. Próf í rekstrar- og viðskiptafræðum EHÍ 1996.

Bóndi að Barkarstöðum í Miðfirði 1981-1985. Yfirmaður auglýsinga- og áskriftadeildar Stöðvar 2 1986-1990. Markaðsstjóri Prentsmiðjunnar Odda 1991-1993. Rak ásamt eiginkonu sinni innflutningsfyrirtækið Rún ehf. 1994-2004. Framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar 2005-2007. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 11. janúar til 30. nóvember 2017. Innanríkisráðherra 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022. Dómsmálaráðherra 1. febrúar 2022 til 19. júní 2023.

Í stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra 1982-1984. Formaður Flugbjörgunarsveitar Vestur-Húnavatnssýslu 1983-1985. Í stjórn Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík 1987-1991, formaður 1989-1991. Í stjórn Landsbjargar 1991-1999, varaformaður 1997-1999. Í landsstjórn aðgerðamála björgunarsveita 1992-1997. Formaður Sjávarnytja, félags áhugamanna um skynsamlega nýtingu sjávarafurða, síðan 1995. Í stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar 1999-2005, formaður 2000-2005. Í stjórn Slysavarnaskóla sjómanna 2002-2009. Formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi 2003-2008. Í stjórn Sunnuhlíðarsamtakanna í Kópavogi frá 2008. Ritari Sjálfstæðisflokksins síðan 2019.

Alþingismaður Suðvesturkjördæmis síðan 2007 (Sjálfstæðisflokkur).

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 2017. Innanríkisráðherra 2021-2022. Dómsmálaráðherra 2022-2023.

Félagsmálanefnd 2007, félags- og tryggingamálanefnd 2007-2009 og 2009-2010, sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd 2007-2011, viðskiptanefnd 2007-2009, umhverfisnefnd 2009, iðnaðarnefnd 2010-2011, atvinnuveganefnd 2011-2013 og 2013-2016 (formaður 2013-2016), allsherjar- og menntamálanefnd 2016-2017, umhverfis- og samgöngunefnd 2017-2021 (formaður 2019), utanríkismálanefnd 2023-.

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2007-2009 og 2023-, Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál 2013-2016 (formaður 2013-2016), Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2017-2021, þingmannanefnd Íslands og ESB 2018-2021.



Síðast breytt 19.09.2023.


Twitter


Aðstoðarmaður:
Ingvar Smári Birgisson

Þingstörf
2. þm. SV , Sjálfstfl., JónG


Nefndasetur:

Utanríkismálanefnd

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins

Hagsmunaskráning

Curriculum Vitae in English




Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.