Willum Þór Þórsson

Willum Þór Þórsson
  • Embætti: Heilbrigðisráðherra
  • Ráðuneyti:Heilbrigðisráðuneytið
  • Kjördæmi: Suðvesturkjördæmi
  • Þingflokkur: Framsóknarflokkur
  • 863-4572

Þingseta

Alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2013–2016 og síðan 2017 (Framsóknarflokkur).

Varaþingmaður Suðvesturkjördæmis febrúar og maí–júní 2017 (Framsóknarflokkur).

Heilbrigðisráðherra síðan 2021.

4. varaforseti Alþingis 2019–2021.

Æviágrip

Fæddur í Reykjavík 17. mars 1963. Foreldrar: Þór Guðmundsson (fæddur 16. janúar 1940) sjómaður og Ágústa Þyrí Andersen (fædd 20. ágúst 1941, dáin 16. mars 2006) ritari. Maki: Ása Brynjólfsdóttir (fædd 2. október 1967) lyfjafræðingur. Foreldrar: Brynjólfur Guttormsson og Ljósbjörg Alfreðsdóttir. Börn: Willum Þór (1998), Brynjólfur Darri (2000), Þyrí Ljósbjörg (2003), Ágústa Þyrí Andersen (2007), Þór Andersen (2009).

Stúdentspróf VÍ 1983. Cand. oecon. próf HÍ 1987. Cand. merc. próf frá Verslunarháskólanum í Kaupmannahöfn 1996. B.Ed.-próf HÍ 2003. Atvinnuþjálfararéttindi, UEFA Prolicence, frá enska knattspyrnusambandinu 2010.

Handknattleiksþjálfari 1986–1995. Kennari við MK 1986–2013. Starfaði hjá Samvinnuferðum-Landsýn 1988–1995. Kennari við Ferðamálaskólann 1993–2001. Knattspyrnuþjálfari 1997–2013. Í stjórn Sparisjóðs Kópavogs 2000–2007, varaformaður 2006–2007. Aðjúnkt við HR 2007–2010, stundakennari 2010–2013. Heilbrigðisráðherra síðan 28. nóvember 2021.

Í miðstjórn Framsóknarflokksins frá 2012.

Alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2013–2016 og síðan 2017 (Framsóknarflokkur).

Varaþingmaður Suðvesturkjördæmis febrúar og maí–júní 2017 (Framsóknarflokkur).

Heilbrigðisráðherra síðan 2021.

4. varaforseti Alþingis 2019–2021.

Efnahags- og viðskiptanefnd 2013–2016 og 2020–2021, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2013–2016, fjárlaganefnd 2017–2021 (formaður 2017–2021), allsherjar- og menntamálanefnd 2013 og 2017–2019, þingskapanefnd 2019–2021.

Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2013–2016, þingmannanefnd Íslands og ESB 2013–2016, Íslandsdeild NATO-þingsins 2017–2021.

Æviágripi síðast breytt 20. janúar 2022.

Áskriftir